HÚSASJÁ

Funalind 7

01-0203 · 201 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

110 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1998

Byggingarár

6949 m²

Lóð

Garður

Svalir

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



90 dagar á sölu

sell

82.900.000 kr

757.078 kr/m²

Dagbjartur Willardsson löggiltur fasteignasali og RE/MAX kynna, Funalind 7, Kópavogi íbúð 0203 fnr. 223-0045

Íbúðin er skráð hjá þjóðskrá 109,5 fm og er íbúðarhluti 104,8 fm og geymsla á jarðhæð 4,7fm. Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er einnig á jarðhæð. Sér þvottahús/geymsla innan íbúðar. Skráð byggingarár hússins er 1998 og er húsið 6 hæða lyftuhús og er íbúðin á 2. hæð hússins.  Hægt er að fara yfir íbúðina hér að neðan í þrívíddarhlekk og svo er gólfteikning sem sýnir fyrirkomulag íbúðar þar sem ljósmyndir af eigninni eru.

FÁÐU SENT SÖLUYIRLIT YFIR EIGNINA HÉR.

Nánari lýsing:

Aðkoma: Malbikað stórt bílplan með mörgum bílastæðum við húsið. Inngangur í snyrtilegan stigagang.

Forstofa: Flísar á gólfi. Fataskápur.

Stofa/borðstofa: Parket á gólfi. Útgengt á rúmgóðar svalir til vesturs. Gluggar í vestur og norður sem gefa góða birtu í rýmið.

Miðrými: Nýtist vel sem sjónvarpsrými. Parket á gólfi.

Eldhús: Parket á gólfi. Rúmgóð innrétting á tveimur veggja. Granítborðplötur eru í innréttingunni og flísalagt á milli efri og neðri skápa. Electrolux bakaraofn í vinnuhæð. Spansuðuhelluborð.

Þvottahús/geymsla: Er inn af eldhúsi og eru ljósar flísar á gólfi og góð innrétting.

Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með parketi á gólfi og fataskáp og einnig er fataherbergi inn af rýminu með góðum skápum.

Barnaherbergi: Eru tvö og er parket á gólfum þeirra beggja og fataskápar í þeim báðum.

Baðherbergi: Flísalagt í hólf og gólf. Hvít innrétting með handlaug. Baðkar og sturtuklefi eru í rýminu. Ekki er gluggi en lofttúða.

Funalind 7 er rúmgóð og björt fjögurra herbergja íbúð á frábærum stað í Kópavogi. Stutt er í alla þjónustu og stofnbrautir og göngufæri er í skóla og leikskóla. Rúmgóðar svalir og er leyfi til að loka svölunum og auka notkunarmöguleika þeirra.

Allar nánari upplýsingar veitir:

Dagbjartur Willardsson lgf hjá RE/MAX í s: 861-7507 eða á daddi@remax.is

- Ég býð upp á frítt söluverðmat á þinni eign og veiti góða og lipra þjónustu. -

Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.

2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.

3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi og fl. 2.700 kr. af hverju skjali.

4. Lántökugjald lánastofnunar - breytilegt, sjá gjaldskrá á heimasíðum lánastofnana.

5. Umsýslugjald til fasteignasölu 69.900 kr. m.vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill RE/MAX því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Funalind 7

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð