HÚSASJÁ

Lækjasmári 2

01-0104 · 201 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

73 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1996

Byggingarár

4120 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Geymsla

Þvottahús



31 dagar á sölu

sell

64.900.000 kr

887.825 kr/m²

Domusnova og Ingunn Björg lgf. kynna bjarta, rúmgóða og vel skipulagða 2 herbergja enda íbúð á 1. hæð með sérafnotafleti í vinsælu fjölbýlishúsi með lyftu við Lækjasmára 2 í Kópavogi.

Frábær staðseting þar sem stutt er í alla helstu þjónustu. Smáratorg og Smáralind eru í göngufæri, ásamt heilsugæslu, líkamsræktarstöð, leikskólum og skóla.

Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin. Mjög snyrtileg sameign, næg bílastæði eru á sameiginlegri lóð. Settir hafa verið upp nokkrir rafhleðslustaurar.

Eignin skiptist á eftirfarandi hátt:  Eldhús, stofa, svefnherbergi, baðherbergi með þvottaaðstöðu og geymslu í kjallara en henni fylgir hlutdeild í sameign, sameiginlegri hjól- og vagnageymslu.

Skv skráningu HMS er eignin 73,1 fm2 þar af er 5,5fm2 geymsla í kjallara hússins. Eignarhlutur íbúðar í húsinu er 2,17%.

Nánari lýsing eignar:

Forsofa: Fataskápur, með hvítlökkuðum hurðum, harðparket á gólfi.

Eldhús: Hvítlökkuð innrétting, helluborð, bakaraofn og háfur. Tengi fyrir uppþvottavél. Góður borðkrókur opinn við stofu. Harðparket á gólfi.

Stofa: Rúmgóð og björt með gluggum á tvo vegu, opið að hluta inn í eldhús, útgengt á verönd sem snýr til suðurs.

Svefnherbergi: Rúmgott með góðum fataskáp með hvítlökkuðum hurðum.

Baðherbergi: Flísalagt gólf, innrétting undir vaski, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, sturta.

Verönd: Hellulögð verönd sem snýr til suðurs. Stærð sérafnotaflatar er 4 metrar fram og meðfram íbúðinni til suðurs.

Geymsla: Í sameign, 5,5f fm2.

Sameiginleg hjóla og vagnageymsla í sameign.

Nánari upplýsingar veita:

Ingunn Björg Sigurjónsdóttir löggiltur fasteignasali / s.856 3566 / ingunn@domusnova.is

Skrifstofa / s.527-1717 / eignir@domusnova.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. DOMUSNOVA fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Um ástand einstakra eignarhluta:

Efst í söluyfirlitli þessu er að finna dálka um ástand einstakra hluta eignarinnar. Eftirfarandi lykil er til skýringar á þeirri skráningu:

Nýtt - Eignin er nýbygging.

Upprunalegt - Seljandi veit ekki til þess að byggingarhluti hafi verið endurnýjaður.

Endurnýjað - Byggingarhlutinn hefur verið endurnýjaður í heild sinni á einhverjum tímapunkti.

Endurnýjað að hluta - Hluti byggingarhlutans hefur verið endurnýjaður á einhverjum tímapunkti.

Ekki vitað - Seljandi þekkir ekki til ástands og ekki er hægt að leggja mat á það með sjónskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Lækjasmári 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu