HÚSASJÁ

Heiðarbyggð 5

01-0101 · 846 Flúðum

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

54 m²

Stærð

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1995

Byggingarár

Garður

Svalir

Geymsla

Heitur pottur



19 dagar á sölu

sell

38.500.000 kr

710.332 kr/m²

Heiðarbyggð C-5 , 54.2 fm 3 herbergja fallegt sumarhús í Hrunamannahreppi, 6km frá Flúðum, með stórri timburverönd í kringum sumarhúsið, heitum potti og stórfenglegu útsýni . Sumarhúsið er mikið til nýlega uppgert. Nýlega málað að utan sem innan, nýleg gólfefni, eldhús uppgert, nýleg borðplata, blöndunartæki og vaskur, nýleg sturta, sérsmíðuð gluggatjöld, nýleg ljós, pottur massaður og málaður og nýjar vatnslagnir lagðar árið 2016.  Stutt er í marga sögufræga staði og náttúruperlur eins og Skálholt, Þjórsárdalur, Gullfoss og Geysir. Innbú fylgir með bústaðnum.

Eignin er skráð skv. Þjóðskrá Íslands alls 54,2fm.

Eignin skiptist í: Forstofu, 2 svefnherbergi, stofu, eldhús, baðherbergi, geymsla og rúmgott svefnloft.

Lóðaleigusamningur endurnýjast sjálfkrafa á 5 ára fresti. Lóðaleigan ásamt hitaveitu er um kr. 300.000.- á ári og er það skipt niður í tvær greiðslur á ári.

Nánari lýsing eignarinnar:

Komið er inn í forstofu. Inn af  forstofu er geymsla. Úr forstofunni er komið inn í lítinn gang þar sem á vinstri hönd er svefnherbergi. Litlu lengra á ganginum er baðherbergi með sturtu. Við enda gangarins er hjónaherbergið ásamt því að þar er stigi sem liggur upp á svefnloft, þar er pláss fyrir 4-6 að sofa. Úr gangi er gengið inn í bjarta stofu og þaðan í eldhúsið sem er með góðan borðkrók.

Ljósgrátt harðparket er á öllum gólfum nema á baði þar sem er dúkur.

Gengið er út á rúmgóðan pall frá stofu. Heitur pottur er á pallinum og nær í kringum bústaðinn, er því hægt að ná sólinni hvenær sem er dags.

Margskonar afþreyingu er að finna á svæðinu s.s. magnaðar náttúruperlur, margar frábærar gönguleiðir, golfvellir ásamt því að stutt er í þjónustu og sundlaug á Flúðum.

Allar nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali í síma 896-6020 eða á netfanginu hallgrimur@trausti.is Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Heiðarbyggð 5

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð