HÚSASJÁ

Bræðraborgarstígur 7

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

134 m²

Stærð

16

Herbergi

2

Baðherbergi

1946

Byggingarár

483 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



323 dagar á sölu

sell

234.900.000 kr

497.353 kr/m²

Híbýli fasteignasala s. 585-8800 kynnir:

Vandað skrifstofuhúsnæði/atvinnuhúsnæði, samtals 472,3 fermetrar á tveimur hæðum við Bræðraborgarstíg 7 í miðborginni.

Eign sem býður uppá mikla möguleika.

Húsnæðið er á fjórum fastanúmerum.

222-7611 - eignarhluti 0101 / 134 fm skrifstofuhúsnæði.

222-7612 - eignarhluti 0102 / 129,4 fm íbúð.

224-5012 - eignarhluti 0001 / 103,8 fm vinnustofa / skrifstofuhúsnæði.

224-5013 - eignarhluti 0002 /105,1 fm vinnustofa / skrifstofuhúsnæði.

Lýsing eignar:

Eignarhluti 0101

Sérinngangur er í húsnæðið af horni Bræðraborgarstígs og Ránargötu.

Í fremsta hluta húsnæðisins hefur um árabil verið verslun, steinteppi er á gólfum, hillur á vegg, stórir gluggar sem vísa að Bræðraborgarstíg og Ránargötu.

Innri hluti húsnæðisins skiptist að mestu leyti í opið rými með ljósu steinteppi á gólfum.

Stór aflokuð skrifstofa með steinteppi á gólfi og gluggum sem snúa að Ránargötu. Einnig er önnur rúmgóð skrifstofa með tveimur gluggum sem snúa inn í garðinn. Útgengi á mjög stóra sameiginlega timburverönd sem er skjólgóð og snýr í suðvestur og nýtist mjög vel.

Eignarhluti 0102

Þessi eignarhluti er skráður sem íbúð.

Opið rými með steinteppi á gólfum, færanleg glerskilrúm skerma af vinnuaðstöður starfsfólks.

Á vinstri hönd þegar komið er inn í eignarhluta 0102 er salerni og flísalagður krókur fyrir prentara og slíkt.

Á hliðinni sem snýr að Bræðraborgarstíg eru fimm rúmgóðar skrifstofur með gólfsíðum glerrennihurðum. Innst á ganginum er svo aðgengi inn í stigahús hússins.

Neðri hluti (rými 0001 og 0002)

Gengið um hring stálstiga úr rými 0101 niður í neðri hluta húsnæðisins. Einnig er hægt að ganga inn í þetta rými úr stigahúsi.

Stór kaffistofa með hvítri eldhúsinnréttingu og borðaðstöðu fyrir starfsfólk. Steinteppi á gólfi.

Fundarherbergi/skrifstofa með glerrennihurð er næst kaffistofunni.

Skristofa 1: Rúmgóð aflokuð skrifstofa með aðstöðu fyrir allt að 4-5 starfsmenn.

Skristofa 2: Einnig rúmgóð skrifstofa með glerrennihurð, steinteppi á gólfi.

Opið skristofurými með aðstöðu fyrir nokkra starfsmenn.

Skrifstofa 3: Skristofa á horni hússins, glerrennihurð.

Skrifstofa 4: Rúmgóð með aðstöðu fyrir um 3 starfsmenn, steinteppi á gólfi.

Skrifstofa 5: Endaskrifstofa með vinnuaðstöðu fyrir 1-2 starfsmenn, harðparket á gólfi.

Á hægri hönd þegar komið er niður hringstigann er salerni með dúk á gólfi og lítil geymsla.

Einnig fylgir húsnæðinu tvær geymslur, önnur er notuð sem tæknirými.

Þakjárn hússins og þakpappi var endurnýjað árið 2021.

Mikil eign í góðu húsi vestarlega í borginni sem býður uppá fjölbreytta möguleika - Stutt í alla helstu verslun og þjónustu - miðborgin og Grandinn í göngufæri.

Nánari upplýsingar á skrifstofu Híbýla í síma 585-8800 eða á netfanginu olafur@hibyli.is

Ólafur Már Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 865-8515 / olafur@hibyli.is

Þórður Ólafsson löggiltur fasteignasali s. 896-4015 / thordur@hibyli.is

Kort af Bræðraborgarstígur 7

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð