HÚSASJÁ

Rósarimi 6

01-0106 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
22 myndir

94 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1995

Byggingarár

2148 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla



302 dagar á sölu

sell

69.900.000 kr

740.466 kr/m²

Fasteignamiðlun Grafarvogs s.575-8585 kynnir í einkasölu íbúð með bílskúr við Rósarima 6 Reykjavík. Um er að ræða 94,4 fm eign sem skiptist í 3.herbergja 72,2 fm íbúð, 16,8 fm bílskúr og 5,4 fm sér geymslu. Matshluti 01-0106, fastanr.222-1817.

Húsið var málað að utan fyrir 2. árum síðan og þá var einnig skipt um glugga.

Nánari upplýsingar veitir Anna F Gunnarsd löggiltur fasteignasali á anna@fmg.is og í síma 892-8778

Nánari lýsing

Um er að ræða afar snyrtilega og bjarta íbúð,

komið er inn í hol með flísum á gólfi og stórum skáp.

Þaðan er komið inn í stofu/borðstofu með parketi á gólfi.

Eldhús er opið og þar er góð innrétting með góðu skápaplássi, tengt er fyrir uppþvottavél, flísar eru á milli skápa og korkur á gólfi.

Útgengt er á suðaustursvalir úr eldhúsi, á svalagólfi eru flísar og gler skjólveggur er við handrið og á sitt hvorri hlið á svölum.

Baðherbergi er með flísum á gólfi, sturtuklefa og innréttingu við vask. Á baði er tengt fyrir þvottavél og þurrkara og þar er góð innrétting þannig að vélarnar eru upphækkaðar.

Á herbergisgangi er parket á gólfi og einnig er parket á hjónaherbergi og barnaherbergi. Í báðum svefnherbergjum eru góðir fataskápar. Veggskápar í barnaherbergi fylgja ekki með.

Íbúðinni fylgir fullgerður 16,8 fm bílskúr með hita og rafmagni, flísum á gólfi, vaski og vaskaborði. Sjálfvirkur hurðaopnari og inngönguhurð. Innréttingar í bílskúr fylgja ekki með í kaupunum.

Sameiginleg hjóla og vagnageymsla er á jarðhæð og einnig 5,4 fm sér geymsla. Sameign er snyrtileg.

Eins og áður sagði var húsið málað að utan og skipt um glugga fyrir tveimur árum síðan.

Búið er að setja öryggismyndavélar í og við húsið

Þeir sem leita að eignum í Grafarvogi og Grafarholti leita til okkar á Fasteignamiðlun Grafarvogs, sími 575-8585. Ekki hika við að hafa samband og fáðu sölumat þér að kostnaðarlausu.

Við erum staðsett í Spönginni, við hliðina á Bónus.

https://www.facebook.com/fmg.is/

www.fmg.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupa á fasteign: Stimpilgjald af kaupsamningi: 0.8% af fasteignamati eignar fyrir einstaklinga en 1.6% fyrir lögaðila, en 0.4% ef um fyrstu íbúðarkaup er að ræða. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali. Umsýslugjald fasteignasölu, samkvæmt gjaldskrá. Skoðunarskylda kaupanda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun. Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp.

Kort af Rósarimi 6

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22