HÚSASJÁ

Efstaleiti 85

01-0101 · 230 Reykjanesbæ

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
36 myndir

135 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1995

Byggingarár

533 m²

Lóð

Bílskúr

Þvottahús

Heitur pottur



37 dagar á sölu

sell

84.000.000 kr

619.469 kr/m²

PRODOMO fasteignasala kynnir í einkasölu gott þriggja herbergja parhús ásamt bílskúr að Efstaleiti 85 í Keflavík.

Góð staðsetning innst í botnlangagötu þar sem stutt er í skóla, leikskóla, íþróttamannvirki og verslun.

Nánari lýsing:

Forstofa með flísum á gólfi og fataskáð.

Hol með parketi á gólfi.

Stofa og borðstofa með parketi á gólfi. Frá stofu er útgengt á verönd.

Eldhús með parketi á gólfi. Innrétting með góðu skápa og vinnuplássi.

Herbergin tvö eru með parketi á gólfum, fataskápar eru í þeim báðum. ( mögulegt er að gera þriðja herbergið þar sem sjónvarpsrýmið er í húsinu, sjá teikningu í myndum )

Baðherbergi með flísum á gólfi og veggjum. Þar er innrétting, baðkar og sturta.

Þvottahús með flísum á gólfi. Þar er góður skápur.

Bílskúr er 33fm. Þar er gott geymsluloft. Útgengt er á baklóð.

Innkeyrsla og stétt er hellulögð, þar er snjóbræðsla.  Á baklóð er góð verönd með skjólveggjum og heitum potti.

Allar nánari upplýsingar veita Lilja Valþórsdóttir Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 860-6886 eða lilja@prodomo.is og Hákon Ó. Hákonarsson Löggiltur fasteignasali í síma 420-4030 / 899-1298 eða hakon@prodomo.is

​​​​​​Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. PRODOMO fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlitið er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren skólp og þak.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

* Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup m.v. að lágmarki 50% eignarhlut) og 1,6% fyrir lögaðila.

* Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 3.800,- fyrir hvert skjal.

* Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

* Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Efstaleiti 85

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36