HÚSASJÁ

Breiðavík 11

01-0101 · 112 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
26 myndir

109 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1995

Byggingarár

2660 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



30 dagar á sölu

sell

76.900.000 kr

703.568 kr/m²

Borg fasteignasala kynnir: Vel skipulögð og björt þriggja herbergja íbúð á jarðhæð í góðu fjölbýlishúsi við Breiðavík 11 í Reykjavík. Íbúðin er 109,3 m² að stærð, þar af geymsla 2,9 fm.

Sérafnotareitur fylgir íbúð sem snýr til suðurs.

Nánari lýsing:

Forstofa / hol: flísalagt gólf

Stofa: mjög björt stofa og borðstofa í sérlega stóru opnu rými. Nýbúið er að leggja nýtt parket í alla stofuna og eldhúsið. Frá stofu er gengið út í sérafnotareit sem snýr til suðurs

Svefnherbergi: 2 rúmgóð svefnherbergi með fataskápum

Eldhús: rúmgott og bjart eldhús með eikarinnréttingu og góðum hornglugga. Gott pláss fyrir eldhúskrók

Baðherbergi: flísalagt hólf í gólf. Snyrtileg hvít innrétting. Baðkar með sturtuaðstöðu

Þvottahús: sér þvottahús

Geymsla: sérgeymsla (2,9 m²)

Húsið og sameign: steinsteypt fjölbýlishús, sameignin er snyrtileg. Aðkoman er góð og sameiginleg bílastæði við hús.

Allir ofnar í íbúð (fyrir utan tvo sem staðsettir eru í eldhúsi og minna svefnherberginu) eru nýir. Þak var málað fyrir nokkrum árum síðan  og á síðasta ári lauk viðgerðum á austurgafli hússins. Tvö hleðslutæki eru fyrir utan húsið á sameiginlegu bílastæði, eitt fyrir hús nr. 11 og eitt fyrir hús nr. 13.

Grafarvogurinn er vinsælt og rótgróið hverfi, þekkt fyrir rólegt umhverfi og góða tengingu við helstu stofnæðar borgarinnar. Göngufæri er í verslun, skóla, íþróttasvæði og almenningssamgöngur.

Nánari upplýsingar veitir:

Úlfar Þór Davíðsson Lögg. fasteignasali, í síma 788-9030, tölvupóstur ulfar@fastborg.is.

Díana Thanh Andradóttir, aðstoðamaður fasteignasala, í síma 868-0146, tölvupóstur diana@fastborg.is

Forsendur söluyfirlits: Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Borg fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af fasteignamati.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi.

Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Breiðavík 11

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26