HÚSASJÁ

Lindargata 57

01-0403 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
25 myndir

53 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1993

Byggingarár

6586 m²

Lóð

Garður

Lyfta

Geymsla



26 dagar á sölu

sell

58.900.000 kr

1.119.772 kr/m²

101 Reykjavík fasteignasala kynnir í einkasölu: Lindargötu 57 þjónustuíbúð fyrir 67 ára og eldri. Vel staðsett eign á besta stað í hjarta Reykjavíkur, björt eign með útsýni til sjávar og að Esju af svölum.

Lýsing eignar:

Forstofa íbúðar, parketlagt gólf og með fataskáp á vinstri hönd við inngang. Gluggi í enda forstofu sem gefur góða birtu í rýmið, útsýni frá glugga að nærumhvefri.

Stofa og eldhús eru samliggjandi í opnu rými með útgengi út á austursvalir með útsýni til sjávar og að Esju og einnig að sameiginlegu svæði við hús.

Eldhúsinnrétting er nett með efri og neðri skápum, eldavél, viftu og ísskáp.

Svefnherbergi er bjart með glugga á tvo vegu, rúmgott og með góðum skáp.

Baðherbergi innangengt frá forstofu, einkar rúmgott, dúklagt og með opinni sturtu, handlaug og salerni.

Tenging er fyrir þvottavél og þurrkara á baðherbergi.

Parketlögð rými eignar endurnýjuð 2021.

Sér geymsla í kjallara hússins.

Aðgengi er frá húsi að bílastæðakjallara. Hægt er að kaupa árskort hjá bílastæðasjóði.

Húsvörður og öryggisþjónusta er í húsinu.

Á Lindargötu er boðið upp á ýsma þjónustu gegn vægu gjaldi fyrir íbúðareigendur:

Þar á meðal, mat í hádegi, morgunkaffi í setustofu, leikfimi, gönguhópar, handavinnu, bókmennta og menningarhópa, föstudagskaffi, bingó, vöfflukaffi og margt fleira.

Fallegt útsýni er frá matsal hússins og frá sameiginlegu rými í húsi til sjávar og að Esju.

Miðbærinn, Laugavegurinn og Bónus í göngufæri ásamt kaffihúsum, veitingastöðum og sundhöll Reykjavíkur skammt undan.

Allar upplýsingar veita: Björg Kristín Sigþórsdóttir s.771-5501 bjorgkristin@101.is og Kristín Sigurey Sigurðardóttir lgf. s.820-8101 kristin@101.is

Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af fasteignamati (eða 0,4% við fyrstu-kaup kaupanda) eða 1.6% fyrir lögaðila.

1. Þinglýsingagjald af hverju skjali kr. 2.700,-

2. Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt um 1,0% af höfuðstól skuldabréfs.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu kr. 89.900,- með vsk.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. 101 Reykjavík Fasteignasala hvetur væntanlega kaupendur til að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015 um sölu fasteigna og skipa. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni en getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem eru ekki aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp, þak osfrv.

Kort af Lindargata 57

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25