Laufengi 8
02-0201 · 112 Reykjavík



21 dagar á sölu
64.900.000 kr
774.463 kr/m²
RE/MAX / Júlían J. K. Jóhannsson Lgf. (sími 823 2641 & julian@remax.is) kynna: í einkasölu virkilega bjarta og fallega 3ja herbergja endaíbúð á 2. hæð í litlu fjölbýli í Engjahverfi í Grafarvogi. Eignin er vel skipulögð með svölum og stæði í opnu bílskýli.
Nánari lýsing:
Anddyri, flísalagt og með fataskáp.
Eldhús, pláss fyrir borðkrók, innrétting með ágætu skápaplássi. Flísar á gólfi og milli skápa.
Stofa, björt með útgengi á 6,9 fm. svalir. Parket á gólfi.
Baðherbergi með sturtubaðkari og tengingar fyrir þvottavél. Flísar á gólfi og veggjum.
Tvö rúmgóð svefnherbergi með fataskápum. Parket á gólfum.
Sérgeymsla á jarðhæð ásamt sameiginlegri hjóla- og vagnageymslu.
Eigninni fylgir merkt bílastæði í opnu bílskýli.
Barnvæn og góð staðsetning í göngufæri við Vætta- Rima- og Borgarholtsskóla og verslun og þjónustu í Spönginni.
Framkvæmdir undanfarið:
2025: Farið í múrviðgerðir á húsi og stigagang. Fylliefni sett í sprungur.
2024: Skipt um glugga í barnaherbergi (suður herbergi).
Frekari upplýsingar veitir Júlían J. K. löggiltur fasteignasali í síma 823 2641 eða á netfanginu julian@remax.is.
Vegna mikillar eftirspurnar vantar mig allar tegundir eigna á skrá. Hafðu samband og ég mun verðmeta eign þína þér að kostnaðarlausu.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Við bendum væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi 0,8%, ( 0,4% ef um fyrstu kaup er að ræða ) og 1.6% (ef lögaðilar) af heildar fasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.700 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar - almennt 0.5% - 1,0% af höfuðstól skuldabréfs. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölur kr. 69.900.-

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
























