Laufengi 15
01-0305 · 112 Reykjavík



33 dagar á sölu
74.900.000 kr
766.633 kr/m²
Hannes Steindórsson kynnir með stolti:
Bjarta og vel skipulagða, fjögurra herbergja endaíbúð með sérinngangi af svölum á þriðju og efstu hæð við Laufengi 15.
Öll rými rúmgóð, suðursvalir með fallegu útsýni. Sérmerkt yfirbyggt stæði.
Stutt er í alla helstu þjónustu, Spöngina, Egilshöll, leik- grunn- og framhaldsskóla og einnig er golfvöllur stutt frá.
Forstofa: Flísalögð forstofa með skápum.
Hol: Parketlagt hol.
Eldhús: Eldhús er með fallegri innréttingu með góðu skápaplássi. Helluborð, vaskur, blástursofn, örbylgjuofn og innbyggð uppþvottavél. Gert er ráð fyrir ísskáp í innréttingu.
Stofa/Borðstofa: Bjartar samliggjandi parketlagðar stofur, útgengt á svalir með fallegu útsýni í suðausturátt.
Svefnherbergi 1: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með skápum.
Svefnherbergi 2: Rúmgott parketlagt svefnherbergi með skápum.
Svefnherbergi 3: Parketlagt svefnherbergi án skápa.
Baðherbergi: Rúmgott flísalagt baðherbergi með innréttingu, handklæðaofni, baðkari með sturtuaðstöðu, tengi er fyrir þvottavél ásamt glugga.
Geymsla: Sérgeymsla í sameign (5,4 fm).Sameiginleg vagna- og hjólageymsla er á jarðhæð.
Allar upplýsingar veitir: Gunnar Valsson s.699-3702 gunnar@fastlind.is
Samkvæmt upplýsingum frá seljanda ver var húsið murviðgert og malað að utan árið 2021. Árið 2024 var skipt um eldhúsinnréttingu, innihurðir, parket og fataskápa í herbergjum.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir





















