HÚSASJÁ

Arnarsmári 2

01-0302 · 201 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
28 myndir

99 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1994

Byggingarár

8229 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Hleðslustöð

Geymsla

Þvottahús



26 dagar á sölu

sell

106.900.000 kr

806.792 kr/m²

Fasteignamarkaðurinn ehf. s: 570-4500 kynnir til sölu virkilega glæsilega, þó nokkuð endurnýjaða, bjarta og vel skipulagða 99,5 fermetra 4ra herbergja endaíbúð með gluggum í þrjár áttir, suðursvölum og frábæru útsýni á 3. hæð (efstu) í góðu litlu fjölbýlishúsi í neðstu röð við opið svæði við Arnarsmára í Kópavogi auk nýlegs 33,0 fermetra bílskúrs með gluggum.

Bílskúr. sem er byggður árið 2022, er 33,0 fermetrar að stærð með aukinni lofthæð, rafmótor á hurð, gluggum, rennandi heitu og köldu vatni, vaski, sturtu og wc.

Lýsing eignar:

Forstofa, flísalögð og með fataskápum.

Gangur, parketlagður.

Baðherbergi, með glugga, endurnýjað.  Flísalagt gólf og veggir, vegghengt wc., handklæðaofn, innrétting og flísalögð sturta með sturtugleri.

Barnaherbergi I, parketlagt.

Hjónaherbergi, stórt, parketlagt með fataskápum á heilum vegg og frábæru útsýni til vesturs.

Barnaherbergi II, parketlagt og með frábæru útsýni til vesturs.

Þvottaherbergi / geymsla, rúmgott, flísalagt og með hillum og innréttingu með stæðum fyrir vélar í vinnuhæð.

Stofa, parketlögð og björt með útgengi á suðursvalir og frábæru útsýni að Reykjanesi, út á sjóinn og víðar.  Svalirnar eru skjólsælar og flísalagðar.

Eldhús, opið við stofu að hluta, parketlagt og með fallegum hvítum innréttingum með flísum á milli skápa, tengi fyrir uppþvottavél og stórri eldavélasamstæðu með stóru gashelluborði.

Yfir íbúðinni er stórt geymsluris, sem farið er á um fellistiga úr þvottaherbergi / geymslu. Skv. eignaskiptasamningi er geymsluris í sameign allra, en eingöngu er hægt að komast inn á það úr þessari íbúð og það því ekki nýtt af neinum öðrum.

Bílskúr, sem er byggður árið 2022, er 33,0 fermetrar að stærð með rafmótor á hurð, mikilli lofthæð, rennandi heitu og köldu vatni, vaski, opnanlegum gluggum á gafli og epoxy á gólfi. Innaf bílskúr eru klósett og sturta og í því rými er epoxy á gólfi og hluta veggja auk þess sem veggir eru að hluta flísalagðir.

Húsið að utan lítur vel út og hefur alla tíð fengið gott viðhald.  Þakjárn var yfirfarið og málað árið 2020.  Fyrir liggur verksamningur við ábyrgan aðila um rúðuskipti í hluta hússins og fullnaðarfrágang bílskúralengju að utan og munu seljendur greiða fyrir þær framkvæmdir. Áætluð verklok vegna þessa eru í júní 2026

Sameign er virkilega snyrtileg og vel umgengin, nýlega teppalögð og máluð og nýlega var sett upp rafmagnsopnun á útihurðir við aðalinngang auk mynddyrasímakerfis.

Lóðin er fullfrágengin með góðri aðkomu og fjölda malbikaðra bílastæða þar sem eru 4 sameiginlegar rafhleðslustöðvar fyrir húsin nr. 2-6 við Arnarsmára.

Allar nánari upplýsingar veittar á skrifstofu Fasteignamarkaðarins ehf. í síma 570-4500 eða á netfanginu fastmark@fastmark.is

Kort af Arnarsmári 2

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28