HÚSASJÁ

Arnarsmári 14

01-0301 · 201 Kópavogi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

88 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1994

Byggingarár

6649 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



2 dagar á sölu

sell

76.500.000 kr

799.373 kr/m²

NÁNARI UPPLÝSINGAR FÆRÐU HJÁ GUÐNÝJU ÞORSTEINS Í SÍMA 7715211 EÐA GUDNYTH@REMAX.IS

SMELLTU HÉR OG SJÁÐU EIGNINA Í 3VÍDD

RE/MAX og GUÐNÝ ÞORSTEINS Löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Bjarta 3ja herbergja íbúð með virkilega fallegu útsýni á 3. hæð í litlu 6 íbúðar fjölbýli. Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin.

Samkvæmt fasteignayfirliti ríkisins er íbúðin 88,2fm að stærð auk 7,5fm geymslu samtals 95,7fm.

Eignin samanstendur af: 2 svefnherbergjum, baðherbergi, eldhúsi með borðkróki og búri/þvottahúsi.

Nánari lýsing

Forstofa: Er með góðu skápaplássi. Viðarparket á gólfi.

Eldhús: Er bjart með borðkróki, góðu skúffu- og skápaplássi ásamt innbyggðri uppþvottavél. Árið 2025 var helluborð og ofn endurnýjað, vifta er fyrir ofan. Viðarparket á gólfi.

Þvottahús/búr: Hægt er að gang inn í það bæði frá forstofu og eldhúsi. Er það mjög rúmgott með tengi fyrir þvottavél og þurrkara, snúrum í lofti, vinnuborði ásamt skápum, gluggi er með opnanlegu fagi. Flísar á gólfi.

Stofa: Eru í björtu rými með sérlega fallegu útsýni ásamt útgangi út á suð-vestur svalir. Viðarparket á gólfi.

Herbergin 2: Eru rúmgóð, er annað þeirra með fimmföldum fataskápum. Viðarparket á gólfi.

Baðherbergi: Er endurnýjað að hluta af fyrri eigendum, er það flísalagt í hólf og gólf með þreplausri sturtu með glervegg, vask með skúffum undir ásamt spegla skápum. Gluggi er með opnanlegu fagi.

Geymsla: Er 7,2fm að stærð og er í sameign í kjallara ásamt vagna- og hjólageymslu.

Húsið er á 3 hæðum með 2 íbúðum á hverri hæð samtals 6 íbúðir, undir hluta hússins er kjallari þar eru geymslur.  Lóð er sameign Arnarsmára 14-18.

Seljendur höfðu orð á hve ljúft og notalegt þetta litla fjölbýli er þar sem gott samstarf er á milli eigenda og að þeim sé annt um að halda eigninni snyrtilegri og vel viðhaldinni.

Allar nánari upplýsingar og bókun á skoðun veitir Guðný Þorsteins löggiltur fasteigna- og skipasali s: 771-5211 eða á netfangið gudnyth@remax.is.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Re/Max því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3.600 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - skv. gjaldskrá lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, 69.900 kr. m.vsk.

Kort af Arnarsmári 14

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30