HÚSASJÁ

Eskihlíð 10

01-0002 · 105 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

46 m²

Stærð

1

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1957

Byggingarár

3174 m²

Lóð

Garður

Geymsla

Þvottahús



63 dagar á sölu

sell

49.900.000 kr

1.073.118 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Vel skipulögð og björt íbúð á jarðhæð í góðu húsi við Eskihlíð 10

* Frábær fyrstu kaup - Möguleiki á 90% fjármögnun

* Laus til afhendingar

* Endurnýjað parket

Húsið hefur fengið gott viðhald í gegnum árin m.a.:

2023 var þak málað

2022 voru gluggar yfirfarnir á framhlið hússins (austurhlið).

2020 voru endurnýjaðar frárennslislagnir frá húsinu, bílaplan endurnýjað, ný hellulögn og sett snjóbræðsla í tröppur og gangstétt. Settar upp rafhleðslustöðvar hjá bílastæðum.

2016 var húsið múrviðgert og steinað.

2011 voru gler og gluggar endurnýjaðir á bakhlið hússins (vesturhlið) og svalahandrið endurnýjuð.

2010 var þak endurnýjað, skipt um járn og pappa.

Einnig er búið að endurnýjað rafmagnstöflur fyrir bæðir stigahúsin.

Nánari upplýsingar veita:

Helen Sigurðardóttir Lgf. í síma nr 766-9500 eða helen@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð samkv. FÍ er 46,50 m2.

Eignin skiptist í stofu / borðstofu, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymslu.

Stofa / borðstofa er með parket á gólfi og opin með eldhúsi.

Eldhús er með U-laga innréttingu, bakarofn, helluborð og vifta.

Baðherbergi er flísalagt með salerni, innréttingu með handlaug og skápum og sturtuklefa.

Svefnherbergi er með parket á gólfi og fataskáp.

Geymsla er innan íbúðar með hillum.

Í sameign er þvottahús, þurrkherbergi og hjólageymsla.

Stór, sameiginleg lóð. Framlóðin er öll endurhönnuð á fallegan máta og nægt af bílastæðum, garður á bakvið hús.

Mjög góð staðsetning þar sem stutt er í miðbæinn og út á helstu stofnæðar Reykjavíkur.  Einnig er stutt í skóla, leikskóla, heilsugæslu, sundlaug og matvöruverslun.

Falleg útivistarsvæði eru allt í kring m.a. Nauthólsvík, Öskjuhlíð og Klambratún.

Í hluta af kynningarmyndum af íbúðinni hafa verið tölvuteiknuð inn húsgögn til að kynna nýtingu á eigninni.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Eskihlíð 10

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu