HÚSASJÁ

Framnesvegur 44

01-0101 · 101 Reykjavík

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
20 myndir

76 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1927

Byggingarár

185 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



53 dagar á sölu

sell

59.900.000 kr

786.089 kr/m²

Trausti fasteignasala og Þorbjörn Geir Ólafsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu fallega og einstaklega vel skipulagða 3ja herbergja íbúð á tveimur hæðum með sérinngangi við Framnesveg 44 á frábærum stað í gamla Vesturbæ Reykjavíkur.

Íbúðin sem er 76,2 fm. skiptist í stofu/eldhús, 3 svefnherbergi, baðherbergi og litla geymslu. Frábær staðsetning, örstutt í skóla, leikskóla, matvöruverslanir, veitingastaði og miðbæinn. Grandinn, Háskólinn og Vesturbæjarlaug í göngufæri. Frábær fyrstu kaup og flottur fjárfestingarkostur. *ÍBÚÐ GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMNING*

Allar nánari upplýsingar veitir Þorbjörn Geir Ólafsson lgfs í síma 895-598 eða á tölvupóstfanginu bjossi@trausti.is.

Íbúðin er 76,2 fm samkvæmt skráningu hjá HMS.

Nánari lýsing:

Sérinngangur er inn í íbúðina.

Efri hæð:

Komið er inn í anddyri sem er jafnframt stofa og eldhús. Flísar við útihurð og parket á alrými. Hiti í gólfum.

I Rúmgott og bjart svefnherberg. Parket og hiti í gólfum.

Baðherbergi sem er flísalagt í hólf og gólf með upphengdu salerni, hvítri snyrtilegri innréttingu og góðri sturtuaðstöðu. Hiti í gólfum.

Neðri hæð:

II Rúmgott svefnherbergi með litlum glugga og fataskáp.

III Rúmgott svefnherbergi með litlum glugga.

Af neðri hæðinni er gengið inn í sameignina og sameiginlegt þvottahús og þaðan út í garð.

Annað:

Íbúðin hefur fengið gott almennt viðhald í gegnum tíðina.

Nýtt þak árið 2016

Ný múrklæðning/sléttpússun að framanverðu árið 2020

Ný múrklæðning /sléttpússun í undirgöngum árið 2020 sem og viðgerðir og frágangur að aftanverðu húsi.

Nýlega hellulagt að aftanverðu (hluti af lóð).

Allt húsið málað árið 2021.

Húseign að utan virðist vera í góðu ástandi

Garður er frágenginn og er leiksvæði Reykjavíkurborgar við bakgarð.

Í eigninni var áður rekin til margra ára verslunin Svalbarði sem margir þekkja og ber skipulag eignar þess merki.

*ÍBÚÐ GETUR VERIÐ LAUS VIÐ KAUPSAMNING*

Hér er frábær eign á ferðinni fyrir t.d. fyrstu kaupendur eða fjárfesta  í  vinsælu hverfi þar sem stutt er í alla þjónustu. Sjón er sögu ríkari, bókið skoðun hjá Bjössa í síma 895-598 eða á tölvupóstfanginu bjossi@trausti.is. Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Skoðunarskylda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Kort af Framnesvegur 44

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð