Kambsvegur 1A
01-0001 · 104 Reykjavík



406 dagar á sölu
34.900.000 kr
972.145 kr/m²
STOFN FASTEIGNASALA KYNNIR: Um er að ræða litla og snyrtilega 35,9 fm ósamþykkta íbúð á jarðhæð þar sem gengið er inn um sameiginlegan inngang í þríbýlishúsi. Stofa og eldhús mynda eitt alrými og svo er rúmgott herbergi og baðherbergi. Íbúðin er í leigu og er vilji hjá leigjendum að vera áfram.
Sýningu á eigninni annast Eggert Maríuson löggiltur fasteignasali og félagsmaður í Félagi fasteignasala s.690-1472 eða með tölvupósti: eggert@stofnfasteignasala.is
Forstofa er með flísum á gólfi og upphengi.
Hol/Gangur er með flísum á gólfi og gluggum meðfram gangi.
Stofa er með flísum á gólfi.
Eldhús er með flísum á gólfi, hvít innrétting og flísar á milli efri og neðri skápa.
Baðherbergi er með flísum í hólf og gólf, wc, sturta, innrétting við vask, ofn og skápar.
Þvottahús er í sameign á jarðhæð og hver með sína þvottavél.
Þar sem seljandi hefur aldrei búið í íbúðinni og þekkir ekki almennt ástand hennar er væntanlegum kaupendum bent á að skoða íbúðina vel
Forsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. STOFN Fasteignasala ehf. bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna







