HÚSASJÁ

Sambyggð 4

02-0303 · 815 Þorlákshöfn

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

71 m²

Stærð

2

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1977

Byggingarár

4008 m²

Lóð

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



112 dagar á sölu

sell

39.600.000 kr

556.962 kr/m²

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Sambyggð 4, íbúð 0303,  815 Þorlákshöfn.  3ja herbergja endaíbúð með sér geymslu á jarðhæð ásamt sameiginlegri hjóla-og vagnageymslu og þvottahúsi.  Gæludýr eru leyfð í húsinu.

Íbúðin er með stórum gluggum til suðurs-og norðurs, sem hleypa góðri birtu inn.

** Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

Íbúðin telur:

* 2 svefnherbergi með fataskáp í þeim báðum. Nýtt harðparket á gólfi.

* Mjög rúmgóða og bjarta stofu með stórum gluggum til vesturs og norðurs.

* Utangengt er á svalir úr stofunni.

* Gott eldhús með hvítri innréttingu með viðarborðplötu.  Nýtt harðparket á gólfi.

* Baðherbergi með hvítri innréttingu, flísum á gólfi og sturtuklefa. Þvottavélartengill er á baðinu.

* Anddyri / forstofa með góðum fataskáp. Nýtt harðparket á gólfi.

* Nýjar innihurðar eru í íbúðinni.

* Sér geymsla er á jarðhæð ásamt sameiginlegri  hjóla-  vagnageymslu.og þvottahúsi.

Samþykkt hefur verið af húsfélagi og peningur er til fyrir því að:

Skipta um teppi í sameign.

Mála sameign.

Mála loft niðri í sameign.

Laga gólf í þvottahúsi.

Skipta um dyrasíma.

Saga niður staura í grindverki.

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.

Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott -  hagnýtar upplýsingar:

Við Þorlákshöfn er rómaður golfvöllur sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna!

Hér eru einstaklega góður grunn- og leikskóli þar sem tekin eru inn börn niður í 18 mánaða!

Verslun og þjónusta:

Hér má m.a. finna:

Verslun Krónunnar

Apótekarann.

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Veitingastaðina:

Thai Sakhon veitingahús (facebook:  Thai Sakhon Restaurant)

Caffe Bristól Bauhaus (facebook:  Caffe Bristól)

Súper pizza

Svarta Sauðinn (facebook:  svarti sauðurinn)  og

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar.    Einnig er Olís hér með ÓB-stöð.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:

Mjög gott bókasafn (facebook:  Bæjarbókasafn Ölfuss)

Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:

Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga. Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook:  fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook:  Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton, motorcrossá braut rétt utan við bæinn, hestamennska (facebook:  hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring og golf á rómuðum golfvelli.  Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl.  Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk.

Jógastúdíó (Jógahornið).

Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna:

Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð.

Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér.

Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.

Einnig er hér:

Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook:  Tónar og Trix, Kyrjukórinn,  ofl.)

Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook:  Kiwanisklúbburinn Ölver)

O.sfr. o.s.frv. o.s.frv.  :)

** Allar helstu fréttir úr sveitarfélaginu má finna á:  www.hafnarfrettir.is

Kort af Sambyggð 4

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð