HÚSASJÁ

Oddabraut 12

01-0101 · 815 Þorlákshöfn

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
50 myndir

195 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1959

Byggingarár

805 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



276 dagar á sölu

sell

82.900.000 kr

425.128 kr/m²

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Oddabraut 12, Þorlákshöfn.  Stórglæsilegt og mikið endurnýjað einbýlishús á 3 hæðum með uppgrónum, skjólgóðum og fallegum garði með hellulögðum veröndum með góðum skjólveggjum og heitum potti.  Utangengt er úr hjónaherbergi á suðursvalir.

Húsið er í grónu hverfi, skammt frá allri helstu þjónustu, svo sem skólum, verslun og íþróttasvæði.

* Húsið getur verið laust við kaupsamning.

** Bóka má skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

Miðhæðin telur:

* Mjög rúmgóða forstofu með flísum á gólfi og fataskáp.  Hiti er í gólfi að hluta.

* 2 stórglæsilegar,stórar, stofur með gluggum í hásuður.   Nýtt harðparket er á gólfi.

* Stórglæsilegt og ný-endurnýjað eldhús með fallegri innréttingu frá Fríform.  Frágangur verður kláraður við innréttinguna.  Ný heimilistæki frá Rafha.  Nýtt harðparket á gólfi.

* Baðherbergi með nýlegum svörtum skáp og innréttingu undir vask með granítborðplötu, upphengdu wc og nýlegri sturtu.  Flísar á gólfi og veggjum.

* Miðhæðin er nýmáluð.

*  Teppalagður stigi liggur upp á efstu hæð hússins.  Stór gluggi er í stigaopi sem hleypir fallegri birtu inn í rýmið.

Efsta hæðin telur:

*  4 stór svefnherbergi.  Góðir skápar eru í hjónaherbergi, í einu barnaherbergi og svefnherbergisgangi .  Fallegir kvistar gefa rýmunum einstaklega fallegt yfirbragð.

Harðparket á gólfi.  Nýlegar innihurðar.

*  Úr hjónaherbergi er utangegnt á suður-svalir með nýlega steyptu gólfi.

*  Nýlega endurnýjað baðherbergi með fallegri hvítri innréttingu, sturtu og upphengdu wc.  Flísar á gólfi og veggjum.  Hiti er í gólfi og nýlegar vatnslagnir.

*  Geymsluloft er yfir hæðinni að hluta.

Neðsta hæðin telur:

*  Mjög stórt þvottahús með nýlegri, mjög góðri innréttingu með skolvask og stóru vinnuborði.  Físar á gólfi.

*  Stóra geymslu með hvítri innréttingu og skolvask.  Epoxi á gólfi. .

*  Utangengt er í bakgarðinn í heitan pott og á þvottasnúrur.

*  Stigi í kjallara er epoxilagður.

* 15m2 geymsluskúr er við endann á bílaplani.  Sólpallur í kringum að hluta.  Rafmagn er í skúrnum og rafmagnsofn.

* Geymsluhús er á baklóð.

* Lóðin er einstaklega falleg og gróin, mjög skjólgóð með fallegum gróðri.

* Nýlegur heitur pottur með góðri stýringu.  Led lýsing er fyrir ofan pottinn og hefur verið smíðað í kringum hann.

* Nýleg hellulögð verönd er á baklóð.

* Tenging fyrir rafhleðslustöð er til staðar.

Húsið hefur fengið mjög gott viðhald.

Sjón er sögu ríkari !

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.

Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:

KRÓNU VERSLUN

Apótekarann.

Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)

Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.

Caffe Bristól.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:

Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:

Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.

Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.

Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.

Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring

Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.

Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.

** Allar helstu fréttir úr sveitaveitarfélaginu má finna á www.hafnarfrettir.is

Kort af Oddabraut 12

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50