HÚSASJÁ

Heinaberg 23

01-0101 · 815 Þorlákshöfn

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

224 m²

Stærð

6

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1979

Byggingarár

744 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



410 dagar á sölu

sell

94.900.000 kr

423.283 kr/m²

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir í einkasölu:  Heinaberg 23, Þorlákshöfn.  Einstaklega fallegt 128m2 einbýlishús með 4 svefnherbergjum ásamt 62m2, tvöföldum bílskúr auk 33m2 geymslu/hobbýherbergi með góðum gluggum, undir bílskúrnum, sem hægt er að nýta á fjölmargan hátt.

Mjög auðvelt er að bæta við 5. svefnherberginu.

Húsið er einstaklega vel staðsett í grónu hverfi, örstutt frá leik- og grunnskóla og íþróttasvæði.

Stór sólpallur með góðum skjólveggjum er á suður- og vesturhlið þar sem sólar nýtur frá morgni til kvölds!

**Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

Eignin skiptist svo:

*  Rúmgóð flísalögð forstofa með skáp.  Forstofuhurðin er með gleri.

*  Einstaklega glæsilega stofu, borðstofu og sjónvarpsstofu með upp teknu lofti. Parket á gólfi.

*  Úr stofunni er utangengt á stóran suður/vestur sólpall með góðum skjólveggjum.

*  4 góð, parketlögð, svefnherbergi, öll með fataskápum.

*  Á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að breyta sjónvarpsstofunni í 5. svefnherbergið.

*  Stórglæsilegt eldhús með sérsmíðaðri innréttingu úr kirsuberjavið, parketi á gólfi og flísum á veggjum.

*  Fallegt baðherbergi með innréttingu úr kirsuberjavið, baðkari og sturtu.  Flísar eru á gólfi og veggjum.

*  Rúmgott þvottahús með innréttingu, skápum og vinnuborði.  Flísar á gólfi.  Utangengt er úr þvottahúsinu í bakgarðinn.

** Bílskúrinn er sérlega stór, fullbúinn og með 2 aksturshurðum.

** Undir bílskúrnum er 33m2 geymsl / hobbýherbergi (steypt gólf og veggir)  með góðum gluggum, vask, hita og rafmagni. Utangengt er í geymsluna um steyptan stiga.

** Garðurinn er uppgróinn. og með stórum sólpall.  Bílaplan er með möl.

** Um er að ræða einstaklega fallega eign sem hefur fengið gott viðhald - sjón er sögu ríkari !

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.

Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:

KRÓNU VERSLUN

Apótekarann.

Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)

Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.

Caffe Bristól.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:

Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:

Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.

Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.

Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.

Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring

Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.

Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.

** Allar helstu fréttir úr sveita

Kort af Heinaberg 23

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu