HÚSASJÁ

Heinaberg 15

01-0101 · 815 Þorlákshöfn

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
43 myndir

206 m²

Stærð

5

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1993

Byggingarár

723 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



414 dagar á sölu

sell

97.000.000 kr

470.189 kr/m²

Fasteignasala Suðurlands (s 483 3424) kynnir:  Heinaberg 15, Þorlákshöfn.  Einstaklega fallegt og skemmtilega skipulagt 145m2 einbýlishús ásamt 62m2 bílskúr.  Húsið er mjög vel staðsett í grónu hverfi, örstutt frá leik- og grunnskóla og íþróttasvæði.  Gengið er niður 2 tröppur í stofuna þar sem er fallegur arinn, sem gefur húsinu einstaklega skemmtilegt yfirbragð.

Húsið er laust til afhendingar!

**Hægt er að bóka skoðun og fá allar nánari upplýsingar í síma 483 3424 og á fastsud@gmail.com **

Eignin skiptist svo:

*  Rúmgóð flísalögð forstofa með skáp.  Forstofuhurðin er með gleri.

*  Einstaklega glæsilega stofa með fallegum arinn og upp teknu lofti.  Gengið er niður 2 tröppur í stofuna sem gerir hana afar skemmtilega.  Parket á gólfi.  Úr stofunni er utangengt á hellulagt svæði.

*  Sjónvarpshol.

*  Borðstofa með parketi.

*  3 mjög góð parketlögð svefnherbergi, öll með skápum.  Á tiltölulega einfaldan hátt er hægt að breyta borðstofunni í 4.herbergið.

*  Skrifstofuherbergi er í enda svefnherbergisgangs !

*  Fallegt eldhús með hvítri og viðar innréttingu, flísum á gólfi og rúmgóðum borðkrók.  Rennihurð er úr eldhúsi í borðstofu.

*  Búr með hillum er inn af eldhúsi.

*  Fallegt baðherbergi með ljósri innréttinu, baðkari og sturtu.  Flísar eru á gólfi og veggjum.

*  Rúmgott þvottahús með innréttingu, skápum og vinnuborði.  Flísar á gólfi.  Utangengt er úr þvottahúsinu í bakgarðinn á timburlagða verönd.  Þvottasnúrur eru í bakgarði.

*  Wc er í þvottahúsinu.

** Bílskúrinn er einstaklega stór og fullbúinn og með 3ja fasa rafmagni.  Stórar geymslur eru í bílskúrnum.

** Garðurinn er uppgróinn og fallegur og bílaplan er steypt.

** Um er að ræða sérlega fallega eign sem hefur fengið mjög gott viðhald - sjón er sögu ríkari !

FASTEIGNASALA SUÐURLANDS HEFUR VEITT VANDAÐA OG GÓÐA ÞJÓNUSTU SÍÐAN 2003 !

Fasteignasala Suðurlands, Unubakka 3b, Þorlákshöfn.

Heimasíða fasteignasölunnar:  https://www.eignin.is/

Í Þorlákshöfn er þjónustustig mjög gott - hagnýtar upplýsingar:

Verslun og þjónusta: Hér má m.a. finna:

KRÓNU VERSLUN

Apótekarann.

Hárgreiðslustofuna Kompuna (facebook: kompan klippistofa)

Rakarstofu Kjartans (facebook: kjartan rakari)

Vínbúðina.

Veitingastaðina: Thai Sakhon Restaurant (facebook: thai sakhon restaurant)

Svarta Sauðinn (facebook: svarti sauðurinn)

Skálann, sem jafnframt er sölustaður Orkunnar. Einnig er hér ÓB-stöð.

Caffe Bristól.

Hér er mjög góð heilsugæsla.

Hér er tannlæknir.

Í Ráðhúsi bæjarins eru, auk skrifstofu sveitarfélagsins:

Mjög gott bókasafn (facebook: Bæjarbókasafn Ölfuss) Landsbankinn

Tómstundir og afþreying:

Íþróttaiðkun í Þorlákshöfn er gríðarlega öflug og þá helst meðal barna og unglinga og er aðstaða til íþróttaiðkunar öll til mikillar fyrirmyndar.

Frá fjögurra ára aldri er í boði að iðka fótbolta (aegirfc.is), fimleika (facebook: fimleikadeild Þórs), körfubolta (facebook: Þór Þorlákshöfn) og frjálsar, ásamt því að iðkaður er badminton. Hér er svo einnig Litli íþróttaskólinn á vegum fimleikadeildarinnar fyrir börn frá eins árs aldri.

Motorcrossá braut rétt utan við bæinn.

Hestamennska (facebook: hestamannafélagið háfeti) með fallegum reiðleiðum allt um kring

Golf (facebook: golfklúbbur Þorlákshafnar) á rómuðum golfvelli sem staðsettur er í jaðri byggðarinnar, rétt við sjávarsíðuna.

Í íþróttamiðstöðinni er mjög góð líkamsræktar-aðstaða þar sem hægt er að komast í einka- þjálfun, spinning, hóptíma, líkamsrækt fyrir eldri borgara o.m.fl. Þar er að finna góða sundaðstöðumeð útilaug, heitum pottum, vaðlaug og skemmtilegri innilaug fyrir fjölskyldufólk. Jógastúdíó (Jógahornið). Öflug sjúkraþjálfun.

Afþreying er hér af ýmsum toga:

hér má meðal annars finna: Fallegt útivistarsvæði við vitann með útsýnispalli og göngustíg meðfram bjarginu í einstakri náttúrufegurð. Heilsustíg má finna í bænum þar sem líkamsræktartæki eru við göngu/hlaupastíga.

Hér er æðisleg strönd sem mikið er mikið notuð til útivistar og þar má oft sjá menn á brimbrettum, en slíkt er gott að stunda hér. Í sjónum við útsýnispallinn er einn vinsælasta staður til brimbrettaiðkunar á Íslandi.

Blackbeach tours (www.blackbeachtours.is) er afþreyingar fyrirtæki sem býður upp á fjórhjólaferðir bæði í fjöruna og um hraunið, RIB bátaferðir meðfram bjarginu og adrenalínferðir, snekkjuleigu og sjóstöng og jógaferðir úti í náttúrunni.

Einnig er hér: Öflugt leikfélag (facebook: leikfélag ölfuss).

Hinir ýmsu kórar (facebook: Tónar og Trix, Kyrjukórinn, ofl.) Einn stærsti Kiwanisklúbbur landsins (facebook: Kiwanisklúbburinn Ölver) O.sfr. o.s.frv.

** Allar helstu fréttir úr sveita

Kort af Heinaberg 15

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43