HÚSASJÁ

Eystri-Þurá 1

Lóð · 816 Ölfusi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
52 myndir

394 m²

Stærð

6

Herbergi

1925

Byggingarár

Geymsla

Þvottahús



517 dagar á sölu

sell

290.000.000 kr

735.294 kr/m²

Einstakt tækifæri til að eignast jörðina Eystri Þurá 1 sem staðsett er 5 km suður af Hveragerði.  Á jörðinni er talsverð trjárækt, gott beitiland og um 7 hektarar af túnum sem hafa verið slegin á hverju ári. Það land sem um ræðir er annars vegar neðan við þjóðveg 38 og nær niður að Þorleifslæk.  Alls eru það um 41 ha í séreign auk þess er helmings eign í 25 hektarar spildu. Einnig er 7 ha land fyrir ofan þjóðveg 38 í séreign næst þjóðveginum og helmingur í 90 ha landi sem nær vel upp á Hellisheiði í áttina að Skálafelli.

Jörðins er í 40 km fjarlægð frá Rauðavatni.

Jörðin gæti hentað vel hestamönnum eða þeim sem vilja búa rétt fyrir utan borgina í fögru umhverfi og þeims sem vilja byggja upp rekstur í ferðaþjónustu.

Húsakostur:

Fallegt og mikið endurnýjað 208 fm einbýlishús stendur á jörðinni.  Upprunalega var það byggt 1925 og síðan byggt við það 2002.  Húsið stendur hátt og er reisulegt.  Á jörðinni er 117 fm hlaða sem var endurbyggð árið 2000 ásamt óinnréttuðu 69 fm hesthúsi (sambyggt). Varmadæla, loft í vatn, er í íbúðarhúsinu en útihús er óupphitað.

Þuráin rennur skammt frá hlaðinu og kringum húsið er talsverð trjárækt sem veitir gott skjól.  Jörðin á veiðirétt í Þorleifslæk en hann er leigður af veiðifélagi.

Íbúðarhús:

Komið er inn í rúmgott anddyri, náttúrusteinn á gólfi. Innaf er baðherbergi og geymsla.  Eldhús er mjög rúmgott með snyrtilegri innréttingu. Innaf er stofa og sólstofa, náttúrusteinn á gólfum. Innaf því er baðherbergi og þvottahús. Á efri hæð eru þrjú svefnherbergi ásamt litlu baðherbergi. Háaloft sem nýtist vel sem geymsla eða svefnloft en reiknast ekki inn í fermetratöluna.

Gagnkvæmur forkaupsréttur á milli Eystri Þurá 1 og Ytri Þurár.

Allar nánari upplýsingar veitir Ásmundur Skeggjason as@hofdi.is, Gsm 8953000.-

Kort af Eystri-Þurá 1

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð