HÚSASJÁ

Lyngheiði 17

01-0101 · 810 Hveragerði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

147 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1973

Byggingarár

795 m²

Lóð

Garður

Svalir

Þvottahús

Heitur pottur



44 dagar á sölu

sell

81.900.000 kr

558.663 kr/m²

Pálsson Fasteignasala kynnir:

Fallegt og bjart 5 herbergja einbýlishús með stórum palli og heitum potti í Hveragerði.Róleg og eftirsótt staðsetning í fjölskylduvænu hverfi5 herbergja einbýlishúsStór trépallur með heitum pottiBílskýli og vinnustofa/geymsluskúrNánari upplýsingar veita:

Páll Pálsson Lgf. í síma 775-4000 eða palli@palssonfasteignasala.is eða

Andrea Ósk Harradóttir - aðstoðarmaður fasteignasala í síma 785-6698 eða andrea@palssonfasteignasala.is

www.eignavakt.is

www.verdmat.is

Góð ráð fyrir kaupendur / seljendur

Birt stærð eignar er 146,6 m² samkv. HMS.

Eignin skiptist í forstofu, forstofuherbergi, hol/gang, stofu, borðstofu, eldhús, búr/þvottahús, fjögur svefnherbergi, baðherbergi, vinnustofu/geymsluskúr og bílskýli.

Forstofa - Forstofa er flísalögð.

Forstofuherbergi - Rúmgott og bjart forstofuherbergi með parketi á gólfi.

Hol / gangur - Rúmgottt hol/gangur, flísalagt, með fataskáp og aðgengi að baðherbergi og svefnherbergjum.

Baðherbergi - Flísalagt baðherbergi með handlaug, salerni, handklæðaofni á vegg og sturtuaðstöðu í baðkari. Baðherbergi var endurnýjað 2020. Gluggi endurnýjaður ásamt lögnum undir baðkari. Flísar teknar af veggjum, timbur og einangrun endurnýjuð og settar voru Fibo plötur ásamt nýjum blöndunartækjum. Vínilparket lagt á gólf.

Svefnherbergi - Við ganginn eru þrjú svefnherbergi. Öll björt og rúmgóð en hjónaherbergið er stærst og með fataskáp.

Eldhús - Eldhús með IKEA-innréttingu, eldavél og flísum á milli skápa og á gólfi. Úr eldhúsi er gengt í búr/þvottahús og dýr út þaðan.

Stofa / borðstofa - Samliggjandi stofa og borðstofa með parketi á gólfi og útgengi út á stóran pall.

Að utan - Húsið er klætt standandi viðarklæðningu. Gluggar og hurðir eru úr tré og járn er á þaki. Við annan enda hússins er vinnustofa/geymsluskúr og bílskýli í framhaldi af því.

Pallur - Pallur sunnan við húsið með skjólveggjum.

Garður - Garður með töluverðum trjágróðri. Innkeyrsla er malbikuð. Í garðinum er einnig lítið skýli og aðstaða sem eigendur hafa nýtt fyrir hænur.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila. (0.4% við fyrstu kaup einstaklinga).

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 3,800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Um skoðunarskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Pálsson fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Lyngheiði 17

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu