Klettahlíð 8
01-0101 · 810 Hveragerði



15 dagar á sölu
74.800.000 kr
754.032 kr/m²
Klettahlíð 8 - Um er að ræða snyrtilegt 99 fm hús á afar stórri lóð en lóðin er skráð 825 fm og er hún mjög skjólgóð. Húsið er 4ra herbergja og var tekið talsvert í gegn samkvæmt fyrri eigendum.
Seljandinn skoðar að veita seljendalán fyrir eigninni og ýmis skipti, húsið er laust við kaupsamning.
Nánari lýsing eignar:
Forstofa með flísum á gólfi, opin stofa í björtu alrými sem saman stendur af eldhúsi, borðstofu og stofu, eldhúsið var tekið í gegn samkvæmt fyrri eigendum árið 2019, innbyggð uppþvottavél og gaseldavél.
Hjónaherbergi með harðparekti á gólfi og útgengt út á suðvestur verönd, barnaherbergi einnig með harðparketi á gólfi.
15 fm herbergi sem var áður geymsla, getur nýst sem svefnherbergi eða sjónvarps/vinnurými, þaðan er einnig útgengt út á pallinn.
Baðherbergi með glugga og epoxí á gólfi, sturtu og snyrtilegri innréttingu. Rúmgott þvottahús með flísum á gólfi og útgengt út.
Um er að ræða vel staðsett hús á afar skjólgóðri lóð sem er samkæmt fmr 825 fm að stærð og bíður upp á ýmsa möguleika,
miðað við nýtingarhlutfall lóðarinnar væri mögulega hægt að sækja um 250fm stækkun hjá Hveragerðisbæ.
Nánari upplýsingar veitir:
Stefán Rafn Sigurmannsson s.655-7000 eða stefan@as.is
Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.
www.facebook.com/asfasteignasala
www.instagram.com/as_fasteignasala
www.as.is

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir







































