HÚSASJÁ

Smyrlaheiði 41

09-0101 · 810 Hveragerði

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
49 myndir

123 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

2008

Byggingarár

9950 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla



346 dagar á sölu

sell

76.900.000 kr

627.243 kr/m²

Fasteignasalan TORG kynnir :

Fallegt fjögurra herbergja endaraðhús á einni hæð með stæði í bílageymslu. Eignin er skráð 122,6fm, þar af 7,7fm geymsla í kjallara. Mjög gott aðgengi er að húsinu. Aukin lofthæð og gólfsíðir gluggar. Eignin skiptist í forstofu, alrými með eldhúsi, stofu og borðstofu, þrjú góð herbergi, baðherbergi og geymslu. Í bílakjallara er sér merkt stæði með lögn fyrir hleðslustöð ásamt geymslu. Lyfta er í bílakjallarann. Sameiginlegt bílaþvottaplan og samkomusalur, stutt í alla almenna þjónustu og útivistarsvæði. Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

NÁNARI LÝSING :

Komið er inn í forstofu með stórum innbyggðum skápum, flísar á gólfi.

Rúmgott alrými sem skiptist í eldhús, stofu og borðstofu. Mikil lofthæð. Gólfsíðir gluggar með sólarfilmu og felligardínum. Útgengt út á stóra afgirta timburverönd sem snýr til suðurs og vesturs. Eldhúsið með eyju með vaski, falleg viðarinnrétting, tengi fyrir uppþvottavél, ísskápur fylgir með í kaupunum. Hjónaherbergi með innbyggðum skápum á heilum vegg, parket gólfi. Mjög stór gluggi er í herbergi. Tvö önnur rúmgóð herbergi með skápum, parket á gólfi. Baðherbergi með "walk in" sturtu, góð innrétting við vask, tengi fyrir þvottavél og þurrkara, flísar á gólfi og veggjum að hluta. Geymsla með innréttingum, flísar á gólfi. Í bílakjallara er sér geymsla innaf bílastæði. Þvottaplan er í bílageymslu. Samningur við ON um leigu á hleðslustöðvum og þjónustu á rafhleðslukerfi.

Gólfhiti er í eigninni, Danfoss hitastýringar á veggjum. Reglulegt viðhald á hitagrind hefur verið framkvæmt af Súperlögnum ehf.

Sameiginleg aðstaða er fyrir íbúa kjarnans í sér húsi/turni sem staðsett er fyrir miðjum kjarnanum. Þar er samkomusalur og setustofa með aðgengi fyrir hreyfihamlaða og lyfta niður í bílakjallara.

Smyrlaheiði 37 - 41 er fimm íbúða raðhús, timburhús klætt að utan með liggjandi báruálsklæðingu, viðarklæðning er á göflum og við inngang, dúkur á þaki.

Hellulagt er fyrir framan hús, snjóbræðsla í hellulögn. Samkvæmt eignaskiptasamningi tilheyrir íbúðinni 35 m² sérafnotaflötur á lóð. Timburverönd, u.þ.b. 30 m² að stærð, með skjólveggjum er við húsið að vestanverðu, verönd nær að lóðarmörkum. Steypt sorptunnugeymsla fyrir tvær sorptunnur er framan við hús.

Skipt var um glugga og gler í hjónaherbergi 2022, Vörðufell ehf, sá um smíði og skipti á glugga. Laus rafmagnspottur á verönd fylgir ekki.

Í Turni: Setustofa og fullbúinn veislusalur fyrir 50 manns, lyfta.

Skráning eignar samkvæmt fasteignayfirliti HMS:

Fasteignanúmer 221-0213.

Stærð: Íbúð 114.9 m². Geymsla 7.7 m². Samtals 122.6 m².

Brunabótamat: 64.100.000 kr.

Fasteignamat: 69.000.000 kr. Fyrirhugað fasteignamat 2026: 75.900.000 kr.

Byggingarár: Íbúð 2008. Geymsla 2007.

Byggingarefni: Timbur.

Nánari upplýsingar veitir Helgi Jónsson Löggiltur fasteignasali í síma : 780-2700 eða á Helgi@fstorg.is

Kort af Smyrlaheiði 41

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu