Dynskógar 8
01-0101 · 810 Hveragerði



18 dagar á sölu
104.900.000 kr
552.396 kr/m²
Fasteignasalan Garður
Baldur fasteignasali – Sími 450-0000 kynnir: Rúmgott og vel skipulagt 189,90 fermetra einbýlishús með fjórum svefnherbergjum, á einni hæð á fjölskylduvænum stað við Dynskóga 8 í Hveragerði, á 1.200 fm lóð.
Um er að ræða fjölskylduvænt heimili með fjórum svefnherbergjum, tveimur baðherbergjum, glæsilegri og bjartari stofu með aukinni lofthæð, nýlegu eldhúsi og bílskúr. Stutt er í fallegar gönguleiðir og náttúru, aðeins um 100 metra frá húsinu.
Viðhald og endurbætur:
- Skipt um allt gler nema í opnanlegum fögum á vesturhlið.
- Allir gluggar úr herbergjum og stofu út í garð nýlegir.
- Allar raflagnir endurnýjaðar, ný tafla, rofar og tenglar.
- Þakjárn og þakpappi endurnýjað árið 2019.
Nánari lýsing:
Anddyri: Flísar á gólfi og fatahengi.
Stofa: Einstaklega tignarleg og björt stofa með aukinni lofthæð og miklu rými. Flísar á gólfi. Í beinu framhaldi er sólskáli með parketi á gólfi, arni og útgengi út á verönd og garð.
Hol / sjónvarpsrými: Rúmgott hol á milli stofu og svefnálmu sem nýtist vel sem sjónvarpshorn eða fjölskyldurými.
Eldhús: Snyrtileg hvít Hágland eldhúsinnrétting með mjög góðu skápa- og vinnuplássi. Innbyggður ísskápur, frystir og uppþvottavél. Tveir bökunarofnar í vinnuhæð, spanhelluborð og vifta.
Hjónaherbergi: Rúmgott herbergi með fataskápum og útgengi út á verönd.
Svefnherbergi 2: Rúmgott herbergi með parket á gólfum og fataskápum.
Svefnherbergi 3: Rúmgott herbergi með parket á gólfum og fataskápum.
Svefnherbergi 4: Minna herbergi með máluðu gólfi.
Baðherbergi 2: Flísalagt í hólf og gólf, flísalögð sturta, innrétting við vask og handklæðaofn.
Þvottahúsi: Flísalagt gólf, tengi fyrir tvær þvottavélar og þurrkara. Útgengt út í garð.
Bílskúr: Rúmgóður bílskúr og geymsla inn af honum.
Lóð og staðsetning:
Stór og rúmgóð 1.200 fm lóð. Frábær staðsetning í grónu hverfi þar sem stutt er í skóla, þjónustu og einstaka náttúru Hveragerðis. Gönguleiðir og útivistarsvæði í um 100 metra fjarlægð.
Annað: Húsið er almennt í góðu ástandi. Skipta þarf um klæðningu á bílskúrshlið inn í garð.
Um skoðunarskyldu:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum.Fasteignasalan Garður bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 2.700 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.
www.fastgardur.is | Bæjarhraun 12 | 220 Hafnafjörður | Fasteignasalan Garður

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir





















