Skálabrekka
01-0101 · 806 Selfossi



221 dagar á sölu
79.900.000 kr
861.920 kr/m²
LANDMARK kynnir: Fallegt 92,7 fm, 4ra herbergja sumarhús við Þingvallavatn. Húsið er á jaðarlóð með óhindrað útsýni yfir vatnið til suðurs. Húsið er á eignarlóð og er lóðin fallega gróin með m.a. berjalyngi og trjám. Húsið er kynnt með varmadælu og rafmagnsofnum. Öryggishlið er á svæðinu. Aðeins um 30 mínútna akstur frá Reykjavík. Skv aðalskipulagi kemur fram að nýtingarhlutfall frístundalóða sé 0,03. Á hverri frístundalóð er einungis heimilt að reisa eitt sumarhús, auk aukahúss/gestahúss allt að 40 m² og geymslu allt að 15 m². Þessar byggingar teljast með í heildarbyggingarmagni lóðar.
*** Húsið var stækkað árið 2009 og þá voru gluggar og útihurðar endurnýjaðar ásamt því að húsið var klætt að utan og þakið endurnýjað að mestu leyti ***
Forstofa er með flísum á gólfi og fataskáp.
Aðalsvefnherbergi er 14,5 fm með fataskáp og parket á gólfi.
Tvö önnur svefnherbergi með parketi á gólfi og mikilli lofthæð.
Eldhúsið er með góðri innréttingu og góðri borðstofu með parketi.
Stofan er björt og falleg með glæsilegu útsýni og parketi á gólfi. Þaðan er útgengt út á verönd með útsýni.
Baðherbergið er flísalagt með innréttingu og sturtuklefa.
Þvottahúsið er með sérinngang og er nokkuð rúmgott, með flísum á gólfi.
Fallegur lækur rennur í gegnum lóðina. Gróf drenmöl er í bílaplani.
Tveir geymslur á verönd norðan megin við húsið sem er með skjólvegg. Greiddar eru um 30 þús kr í sumarhúsafélagið á ári. Ljósleiðari við lóðamörk.
Upplýsingar veitir Sigurður Samúelsson Lgf í síma 896-2312 eða ss@landmark.is
----------------------------------------------------------Skoðunar- og aðgæsluskylda:
Lög um fasteignakaup nr. 40/2002 kveða á um að kaupendur þurfi að skoða fasteignir vel áður en tilboð er gert. LANDMARK fasteignamiðlun ráðleggur kaupendum að skoða ástand eignar og leita sér aðstoðar sérfræðinga ef þörf er á nánari skoðun.
Söluyfirlit:
Söluyfirlit er gert af fasteignasala samkvæmt lögum nr. 70/2015. Upplýsingar í yfirlitinu eru fengnar úr opinberum skrám, frá seljanda og ef þarf frá húsfélagi. Fasteignasali sannreynir upplýsingar með skoðun á eigninni en getur ekki sannreynt ástand þess sem ekki er aðgengilegt eða sýnilegt, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða:
1. Stimpilgjald: 0,8% af fasteignamati (0,4% fyrir fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald: 2.700 kr. fyrir hvert skjal.
3. Lántökugjald: Fer eftir gjaldskrá lánveitanda.
3. Þjónustusýslugjald: 79.000 kr. m/vsk.
3. Skipulagsgjald: Ef um nýbyggingu er að ræða, 0,3% af brunabótamáti þegar það er lagt á.
Heimasíða LANDMARK
Pantaðu frítt söluverðmat

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna




































