HÚSASJÁ

Víkurvegur 2

01-0101 · 806 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
44 myndir

112 m²

Stærð

4

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1950

Byggingarár

5100 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir



629 dagar á sölu

sell

79.000.000 kr

705.357 kr/m²

Eignamiðlun kynnir:

Eignamiðlun kynnir:

Reisulegt sumarhús við Víkurveg 2, Þingvöllum, Bláskógabyggð. Eignin stendur á gróinni lóð með hávöxnum trjám við opið svæði nærri Þingvallavatni með stórkostlegu útsýni yfir vatnið og fjallasýn. Timburverönd umlykur húsið auk þess er skjólgóð timburverönd/grillverönd við húsið bakatil. Lóðin er leigulóð 5.100,0 fermetrar að stærð og er í eigu Ríkissjóðs Íslands. Aðgengi að húsinu er mjög gott frá bílaplani að framanverðu og til hliðar við húsið.

Húsið er timburhús á einni hæð og stærð þess skv. Fasteignaskrá Íslands er 112 fermetrar. Sumarhúsið var endurbyggt árið 1990 en gamla sumarhúsið var rifið og nýtt hús byggt á sama grunni.

Húsið er afar vel byggt hús frá fyrstu gerð, reisulegt og stílhreint.

Húsið skiptist í forstofu, eldhús, tvær rúmgóðar stofur, þrjú svefnherbergi og svefnloft, baðherbergi með sturtuklefa. Útgengt er út á verönd bæði úr eldhúsi og úr stofu.

Gólefni eru flísar og parket á alrými og svefnherbergjum en dúkur á gólfi á baðherbergi. Geymsluskúr á verönd eru tæpir 10fm.

Í húsinu eru rafmagnsofnar og hitakútur fyrir heitt neysluvatn. Rotþró er við húsið. Við húsið er borhola en borað var fyrir köldu vatni.

Svæðið er á lista Heimsminjaskrár UNESCO.

Lóðin er leigulóð í eigu Ríkissjóðs Íslands.

Nánari upplýsingar veita:

Guðlaugur Ingi Guðlaugsson lögg.fasteignasali í síma 864-5464 eða gudlaugur@eignamidlun.is.

Alfreð Valencia aðst.m fasteignasala í síma 776-2150 eða alfred@eignamidlun.is

***

Ábyrg þjónusta í áratugi. Eignamiðlun var stofnuð 1957 og er elsta starfandi fasteignasala á Íslandi. Reynsla, heiðarleiki og þekking á fasteignamarkaðnum eru grunnur að farsælum viðskiptum.

Eignamiðlun Grensásvegi 11, 108 Reykjavík - Opið frá kl. 9-17 mánudaga til fimmtudaga og 9-16 á föstudögum.

Heimasíða Eignamiðlunar

Eignamiðlun á Facebook

Kort af Víkurvegur 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð