HÚSASJÁ

Klapparhólsbraut 7

01-0101 · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

51 m²

Stærð

2

Herbergi

1

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1976

Byggingarár

5867 m²

Lóð

Sérinngangur

Þvottahús

Heitur pottur



516 dagar á sölu

sell

59.500.000 kr

656.009 kr/m²

Betri Stofan og Jason Ólafsson fasteignasali kynnir: Heilsárshús í Öndverðarnesi. Mikið endurnýjað 96 fm sumarhús sem var stækkað árið 2020. Klapparhólsbraut 7.

Húsið stendur á skógi vaxinni lóð, 5.867 fm með langtíma leigusamningi í hinu vinsæla Múraralandi í Öndverðanesi. Eignin skiptist í stofu, eldhús, svefnloft, baðherbergi, hjónaálmu, geymsluskúra. Stór og sólríkur pallur umlykur húsið og við það er heitur pottur. Gestaálma byggð 2020 sem er með gólfhita. Inntaksgeymsla með þvottaaðstöðu. Aukahús/bílskúr við bílastæði.

Nánari lýsing.

Gengið er inn í opið rými sem samanstendur af forstofu, stofu, borðstofu og eldhúsi. Fallega byggður arinn er í stofu. Baðherbergi með sturtu. Viðnn  eldhúsi er gengið upp stiga uppá svefnloft.

Hús sem hefur fengið gott viðhald í gegnum tíðina.

Aðeins 45 mín akstur frá höfuðborgarsvæðinu og 10 mín frá Selfossi.

Lokað svæði, hringihlið einnig með fjarstýringu og bundið slitlag er á götum innan þess. Sundlaug er á svæðinu sem eigendur hafa aðgang að. Hitaveita, kalt vatn og rafmagn.

Í Öndverðarnesi er frábær 18 holu golfvöllur í fallegu umhverfi með fögru útsýni í friðsælli íslenskri náttúru eins og hún gerist fegurst. Völlurinn býður upp á krefjandi upplifun fyrir alla kylfinga við frábærar aðstæður.

Á svæðinu er skemmtileg 16x8 metra sundlaug með heitum pottum. Laugin er eingöngu fyrir þá sem eiga sumarhús í Öndverðarnesi og gesti þeirra. Aðgangur er með sundlaugarkorti sem er innifalið er í lóðarleigunni.

Í Öndverðarnesi er staðarhaldari sem hefur umsjón með svæðinu þ.m.t. snjómokstur á götum þegar þess þarf, umsjón með sundlauginni og umsjón með gámasvæðinu sem tilheyrir Öndverðarnesi.

Stutt að sækja frístundir s.s. veiði, golf og fallegar gönguleiðir og stutt er til þekktra staða á Suðurlandi, Skálholts, Þingvalla, Laugarvatns, Geysis, Gullfoss og Kersins.

Hringið og bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson, sími 775-1515 jason@betristofan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Klapparhólsbraut 7

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu