Syðri-Brú
01-0101 · 805 Selfossi



15 dagar á sölu
58.000.000 kr
1.139.489 kr/m²
ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:
Fallegt sumarhús í grónu og skemmtilegu umhverfi í landi Syðri-brúar í Grímsnes og Grafningshreppi.
Húsið sem er skráð 50,9 m2 að stærð er timburhús, klætt að utan með málaðri timburklæðningu, bárujárn er á þaki.
Nýlegt gestahús sem er ca 20 m2 sem og vinnuskúr ca 9 m2 eru einnig á lóðinni, hvorugt þeirra eru inni í heildar fermetratölu eignarinnar.
3ja fasa rafmagn er í húsinu og nýleg rotþró er við húsið.
Starfrækt sumarhúsafélag er á svæðinu. Svæðið er lokað með símahliði.
Að innan skiptist eignin í forstofu, baðherbergi, stofu og eldhús í opnu rými.
Nánari lýsing:
Parket er á gólfi í forstofu.
Stofa og eldhús eru með parketi á gólfi en upptekið loft er í rýminu.
Í eldhúsi er nýleg og snyrtileg innrétting, í stofunni er hurð er út á fínan sólpall.
Sólpallurinn er með heitum potti (rafmagnspottur), geymsluskúr ca 9 m2 er bakvið hús.
Gestahúsið er opið rými ca 20 m2 og er fínn sólpallur við húsið.
Nýlegt gróðurhús er við pallinn
Að auki er búið að teikna 40m2 skúr sem má byggja á lóðinni
Lóðin sem er eignarlóð er 10.000m2 að stærð er öll mjög gróin og einstaklega skjólgóð.
Mjög vinalegt sumarhús í skjólgóðu og góðu hverfi þar sem stutt er í þjónustu og afþreyingu.
Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.
arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.
3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.
4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.
5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna


































