HÚSASJÁ

A-Gata 4

01-0101 · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
30 myndir

58 m²

Stærð

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1984

Byggingarár

6521 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla



393 dagar á sölu

sell

34.400.000 kr

597.222 kr/m²

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:

Sælukot eða  A-Gata 4, Grímsnes- og Grafningshreppi, 805 Selfoss, - aðkoma frá Þingvallavegi.

-  Hentar vel til að búa í allt árið um kring. -

Hlýlegt 57,6fm, þriggja herbergja heilsárshús, byggt árið 1984 á 6521fm skógi vaxinni EIGNARLÓÐ.

Tveir geymsluskúrar fylgja, - hitaveitustofn í götunni við húsið.

Gengið er inn af palli sem nær umhverfis húsið. Í forstofunni er góður skápur og svo gangur inn, alrými á vinstri hönd, stærra svefnherbergið beint inn ganginn og baðherbergið til hægri. Alrými samanstendur af stofu  og eldhúsi og annað svefnherbergi er þar innaf. Í eldhúsi er nett innrétting með eldavél og uppþvottavél sem fylgir við sölu eins og ísskápurinn. Laus eyja framan við.  Stofan björt og hægt að opna út á pall með stórri glerhurð. Kamína og varmadæla til upphitunar en rafmagnsofnar í herbergjum og á baðherbergi.  Annað svefnherbergið panelklætt og með koju, hitt með máluðum panel á veggjum eins og á baðherberginu, stofunni og eldhúsinu.  Baðherbergið með sturtuklefa, hitakút, hillum og handlaug á nettum skáp.

Að utan er húsið klætt með liggjandi viðarklæðningu, gluggar og hurðir úr tré og bárujárn á þaki. Pallur umhverfis húsið og tveir geymsluskúrar á lóðinni, annar við húsið, ca 5fm og óeinangraður, en hinn um 10fm áður vinnuskúr sem stendur á tveimur stálbitum, hvorki tengdur við vatn né rafmagn en hugsanlega nýtilegur sem gestahús með tiltölulega litlum tilkostnaði.

Lóðin er skráð 6521fm og þar af eru 2000fm til eigin ráðstöfunar, uppfærsla á deiliskipulagi með nákvæmari mælingum á stærð lóða er í vinnslu.

Á svæðinu er starfandi félag húseigenda og er árgjald þar 30þús, en félagið sér m.a. um snjómokstur eftir þörfum á veturna auk reksturs öryggishliðs sem er á veginum inn á svæðið.  Hitaveitustofn í götunni við húsið og því einfalt að tengjast hitaveitu.

Kyrrlátur og fallegur staður.

--VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN--

Nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali

s. 896 9565,

loftur@husfasteign.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr.3.800.- af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af A-Gata 4

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30