HÚSASJÁ

Húsasund 5

01-0101 · 805 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
11 myndir

67 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1974

Byggingarár

5000 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Heitur pottur



256 dagar á sölu

sell

34.900.000 kr

524.812 kr/m²

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Fallegt og vel viðhaldið eldra sumarhús á góðum stað í Hraunborgum í Grímsnes og Grafningshreppi.

Húsið stendur á 5.000 m2 leigulóð í grónu umhverfi skammt frá þjónustumiðstöð og sundlaug sem eru á svæðinu.

Eignin samanstendur af eldra A húsi 40,9m2 að stærð og gestahúsi sem er 25,6m2 að stærð.

A-húsið er byggt árið 1975 er á steyptri plötu og hefur fengið mjög gott viðhald í gegnum árin og er í góðu ástandi. Gestahúsið er byggt árið 2013 og er mjög snyrtilegt.

Hitaveita er í eigninni.

Nánari lýsing:

Í aðalhúsinu er komið inn í flísalagða forstofu en innaf því er flísalagt baðherbergi en þar er góð sturta.

Stofa og eldhús eru í opnu rými, parket er á gólfi og í eldhúsi er snyrtileg innrétting. Í stofu er útgengt á góðann sólpall.

Í stofu er stigi upp á svefnloft sem skiptist í gott parketlagt herbergi og opið svefnrými einnig með parketi á gólfi.

Gestahúsið er 25,6m2 að stærð, klætt að utan með timburklæðningu og er litað járn á þaki.

Húsið skiptist í forstofu, baðherbergi og opið rými.

Flísar eru á gólfi í forstofu og á baði, á baði er lítil innrétting og sturta.

Opna rýmið er parketlagt og þar er lítil innrétting og góð innrétting út á sólpall.

Stór sólpallur með skjólveggjum og heitum potti er við húsið, lóðin er öll gróin og snyrtileg.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.

Kort af Húsasund 5

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu