HÚSASJÁ

Efsti-Dalur

01-0101 · 806 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
23 myndir

47 m²

Stærð

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1990

Byggingarár

4690 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir



636 dagar á sölu

sell

30.900.000 kr

464.662 kr/m²

Betri Stofan fastseignasala Borgartúni 30 og Jason Kristinn s. 7751515 kynnir: Fallegt og vel staðsett 66 fm sumarhús á einstökum útsýnisstað í Efsta-Dal í Bláskógabyggð með stórkostlegu útsýni yfir suðurlandsundirlendið og að Eyjafjallajökli, Heklu og víðar. Húsið er 46,5 fermetrar auk um 20 fermetra svefnlofts með góðri lofthæð og stendur á 4.690 fermetra leigulóð á skjólsælum útsýnisstað og gróðri vaxinni lóð. Sælureitur er að auki á lóðinni með útigrilli og borðaðstöðu. Innbú getur fylgt með. Öryggishlið er á svæðinu sem er lokað. Sumarhúsafélag.

Húsið er vel skipulagt og nýtist mjög vel. Hentugt fyrir þá sem vilja eiga sumarhús/heilsárshús í fallegu umhverfi og ekki of stórt.

Eignin er öll nýlega tekin í gegn að innan sem utan.

Ný rotþró.

Sýnum daglega.

Bókið skoðun: Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali, í netfangið jason@betristofan.is sími 775-1515

Lýsing eignar:

Forstofa með parketi á gólfi.

Baðherbergi með glugga, innrétting, salerni og góð sturta.

Eldhús, opið við stofu, parket á gólfum, glæný innrétting, innbyggð uppþvottavél og ísskápur, ofn og spanhelluborð ásamt borðaðstöðu.

Stofa, parket á gólfi og mikil lofthæð. Úr eldhúsi og stofu er útgengt á verönd með einstaklega fallegu útsýni yfir suðurlandsundirlendið.

Tvö rúmgóð svefnherbergi með parketi á gólfum.

Svefnloftið getur nýst sem þriðja svefnherbergið. ATH, eignin er skráð 46,5 fm skv. HMS en er í raun 66 fm útaf rúmgóðu svefnlofti.

Svefnloft er yfir helmingshluta bústaðarins og er það rúmgott og með góðum gaflglugga. Stigi er upp á svefnloftið úr forstofu.

Hitaveita er á svæðinu en hún hefur enn ekki verið tekin inn í sumarhúsið. Kalt vatn kemur úr veitu og er húsið kynnt með hitakútum.

Rafmagnskostnaður er í kringum 11 þús á mánuði.

Lóðin er leigulóð og er gjaldið ca. 100 þús á ári.

Stutt er í alla þjónustu. 10-15 mínútna akstur er á Laugarvatn, Reykholt, Flúðir og að Geysi.

Góðir golfvellir, gönguleiðir, veitingastaðir, sundlaugar og ýmiss afþreying er þar að auki í næsta nágrenni.

Nánari upplýsingar: Jason Kristinn Ólafsson löggiltur fasteignasali, í netfangið jason@betristofan.is sími 775-1515

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af ef að kaupum verður:

1. Stimpilgjald af fasteignamati fasteignar er 0.8%, en 0,4% fyrir fyrstu kaup og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald: kaupsamningi, skuldabréfi, veðleyfi, afsali o.s.frv. er kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökukostnaður samkvæmt verðskrá viðkomandi lánastofnunar.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Kort af Efsti-Dalur

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð