HÚSASJÁ

Brúnavegur 8

01-0101 · 806 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
36 myndir

57 m²

Stærð

3

Herbergi

2

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1987

Byggingarár

3000 m²

Lóð

Svalir

Geymsla

Heitur pottur



542 dagar á sölu

sell

32.000.000 kr

562.390 kr/m²

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar kynnir eignina Brúnavegur 8, 806 Selfoss, nánar tiltekið eign merkt 01-01, fastanúmer 220-5736 ásamt öllu því sem eigninni fylgir, þar með talið tilheyrandi lóðar og sameignarréttindi.

Eignin Brúnavegur 8 er skráð sem hér segir hjá HMS: Eign 220-5736, birt stærð 56.9 fm. sem stendur á leiglóð í landi Úthlíðar.Í Úthlíð  er rekinn veitingastaður og 9 holu golfvöllur. Öryggishlið er á sumarhúsasvæðinu og er bústaðurinn innan þess svæðis.

Um ræðir fallegt timburhús 57m2 að grunnfleti byggt 1987. Húsið er klætt með láréttri vatnsklæðningu- vel málað. Góðir pallar umhverfis húsið og heitur pottur ( rafmagns). Járn á þaki. Þakið þarfnast málningar. Að innan er húsið panelklætt með spónaparketti á gólfum. Svefnloft fyrir 2-3. Frárennsli og rotþró var endurnýjað árið 2007. Búið er að skipta um hluta af rúðunum undanfarin ár.

Eignin skiptist í anddyri, stofu/skála, eldhús með upprunalegri innréttingu, baðherbergi og 2 svefnherbergi. Svefnpláss fyrir 6-7 i húsinu – upptekið loft, panelklætt.  Kamína í stofunni með strompi. Geymsla er undir pallinum.

Rafmagnskynding í húsinu – tölvustýrð. Kalt vatn frá veitum. Fallegt barnahús fylgir- lóðin er leigulóð, vel gróin á kyrrlátum stað.  Húsgögn geta fylgt.

Nánari upplýsingar veitir Ólafur Björnsson Hrl. og lögg.fast, í síma 8943209, tölvupóstur oli@olafur.is og Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og nemi til lögg. fasteignasala, í síma 6956134 og kristo@olafur.is

Um skoðunar- og aðgæsluskyldu:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. LÓB fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002, og ábyrgist að þær séu réttar. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak. Það sama á við um staðhæfingar seljanda eignar um viðhald og einstaka framkvæmdir.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

Stimpilgjald af kaupsamningi sem er hlutfall af fasteignamati. Stimpilgjald er 0,8% fyrir einstaklinga (0,4% við fyrstu kaup) og 1,6% fyrir lögaðila.

Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. Þinglýsingargjald er kr. 2.700,- fyrir hvert skjal.

Lántökugjald lánastofnunar. Um lántökugjald vísast í gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

Umsýsluþóknun fasteignasölu skv. gjaldskrá.

Ef um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali kristo@olafur.is s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali oli@olafur.is - s: 416 2220 - gsm: 894 3209

Kort af Brúnavegur 8

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36