HÚSASJÁ

Miðfellsvegur 2

01-0101 · 806 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
43 myndir

108 m²

Stærð

5

Herbergi

4

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1988

Byggingarár

5401 m²

Lóð

Sérinngangur

Heitur pottur



673 dagar á sölu

sell

65.000.000 kr

603.528 kr/m²

LIND fasteignasala og Þórey Ólafsdóttir löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu RISABJÖRG í ÚTHLÍÐ - mikið endurbætt / nýlegt heilsárshús með heitum potti við Miðfellsveg 2 í landi Úthlíðar í Biskupstungum, einu vinsælasta sumarhúsasvæði landsins þar sem stutt er í alla helstu þjónustu, golfvelli og útivistarsvæði. Lokað svæði með fjarstýrðu hliði.

Húsið er timburhús á steyptum súlum með standandi viðarklæðningu, stór afgirt timburverönd umhverfis húsið, heitur pottur og geymsluskúr en eins er byrjað að grafa fyrir stækkun á palli og geymsluskúr. Húsið var upphaflega byggt árið 1988 og var þá um 47 fm að stærð en var svo stækkað um rúmlega 60 fm á síðust árum og eldri hlutinn endurnýjaður, klæddur að utan og byggð ný timburverönd.

SMELLTU HÉR til að fá sent söluyfirlit en annars veitir Þórey Ólafsdóttir, löggiltur fasteignasali í síma 663 2300 eða thorey@fastlind.is

Birt stærð samkæmt HMS frá árinu 2019 er 107,7 fm en í húsinu er rúmgott alrými, þrjú svefnherbergi, svefnloft og tvö baðherbergi.

Nánari lýsing:

Forstofa, flísalögð með fatahengi.

Stofa með fallegum arni, parket á gólfi og útgengt á timburverönd.

Eldhús og borðstofa með hvítri innréttingu, uppþvottavél og parket á gólfi og útgengt timburverönd.

Hjónaherbergi með stórum fataskápum og parket á gólfi.

Baðherbergi innaf hjónaherbergi, flísalagt með innréttingu, upphengdu salerni og walk-in sturtu. Tengi fyrir þvottavél.

Tvö önnur svefnherbergi án fataskápa, parekt á gólfi.

Baðherbergi með innréttingu, upphengdu salerni og sturtuklefa.

Svefnloft með glugga.

Lóðin er 5401 fm leigulóð en gerður verður nýr samningur við kaupendur.  Ársleiga í dag 120.000 en einnig er greitt í sumarhúsafélagið um 16.000 kr á ári, aðgangur að rafmagnshliði innifalinn. Fasteigngjöld kr 31.225 pr mánuð en þá er kaldavatnið innifalið og losun á rotþró á 3ja ára fresti innifalin. Eigendur greiða ca 14.600 á mánuði fyrir heita vatnið til Veitna og ca 7.400 kr á mánuði fyrir rafmagn til Rarik.

Vel staðsett hús þaðan sem stutt er á Flúðir, Laugarvatn, Laugarás, Gullfoss og Geysi.

Kort af Miðfellsvegur 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð