Asparlundur
Lóð · 806 Selfossi



401 dagar á sölu
85.000.000 kr
2.780 kr/m²
Trausti fasteignasala og Hallgrímur Hólmsteinsson löggiltur fasteignasali kynna Asparlund gróðrastöð í Laugarási. Um er að ræða fjögur gróðurhús, geymslu og pökkunarhús sem öll eru hituð með jarðhita. Tvö gróðurhúsanna eru í útleigu með góðar leigutekjur á mánuði. Öll húsin eru upphituð og eru tvö þeirra tilbúin til ræktunar en lítilsháttar hreinsun og snyrting gerir hin tvö ræktunarhæf. Pökkunarhúsinu hefur verið breytt að hluta og er nú eldhúsaðstaða og tvö herbergi ásamt baðherbergi með sturtu. Landið, sem er leiguland, er um 1,4 hektarar en það gefur möguleika á að reisa fleiri byggingar á svæðinu, til dæmis gistirými fyrir ferðaþjónustu eða stök hús.
Laugarás er fallegur lítill byggðarkjarni skammt frá Skálholti. Staðurinn er annálaður fyrir veðursæld á sumrin og jarðhitann sem nýttur hefur verið til ræktunar. Fyrirhugað baðlón á eftir að aulka vinsældir svæðisins til muna og eru því mikil tækifæri í fjárfestingu á svæðinu. Akstursfjarlægð frá höfuðborginni er rúm klukkustund.
Allar nánari upplýsingar veita Hallgrímur Hólmsteinsson lgfs í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is og Kristján Baldursson lgfs með tölvupósti á kristjan@trausti.is.
Nánari lýsing eigna
Pökkunarhúsið er skráð 96,6 m2 skv HMS. Því hefur verið skipt upp í tvennt og er eldhús og kaffiaðstaða ásamt tveim svefnherbergjum og baðherbergi með sturtu í öðrum helmingnum en verkstæði og geymsla í hinum hlutanum.
Gróðurhús I er skráð 480 m2 hjá HMS.
Gróðurhús II er skrá 99,4 m2 hjá HMS
Gróðurhús III er skráð 382 m2 hjá HMS
Gróðurhús IV er skráð 518,4 m2 hjá HMS.
Samtals eru því gróðurhúsin 1480 m2
Geymsla er skrá 38,3 m2 og er með góðum tvöföldum innkeyrsludyrum.
Öll húsin eru hituð með jarðhita af svæðinu og er hitakostnaður lítill.
Nánari upplýsingar veitir Hallgrímur Hólmsteinsson í síma 896-6020 eða með tölvupósti á hallgrimur@trausti.is eða Kristján Baldursson með tölvupósti á kristjan@trausti.isForsendur söluyfirlits:
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni. Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.
Skoðunarskylda:
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Trausti fasteignasala því benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun ef þurfa þykir.
Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi, fyrstu kaup (0,4%), almenn kaup (0,8%), lögaðilar (1,6%) af heildarfasteignamati.
2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
3. Lántökugjald lánastofnunar er skv. verðskrá viðkomandi lánastofnunar. Nánari upplýsingar á t.d. heimasíðu lánastofnana.
4. Umsýslugjald til fasteignasölu skv. kauptilboði.

Dýpri greining á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður við sambærilegar eignir







