Túngata 66
01-0101 · 820 Eyrarbakka



2 dagar á sölu
89.900.000 kr
321.531 kr/m²
Fasteignasalan Heimaland kynnir í einkasölu,
Túngata 66 á Eyrarbakka. (Sandur)
Um er að ræða reisulegt 195,6fm einbýlishús á tveimur hæðum ásamt 84fm bílskúr.
Húsið er byggt árið 1956 úr steypu og bílskúrinn árið 1979 úr holsteini.
Nánari lýsing eignar:
Neðri hæð telur forstofu, eldhús, stofu, borðstofu svefnherbergi, baðherbergi, þvottahús. Stigi upp á efri hæð úr forstofu. Nýlegt parket er á gólfum á gangi, stofu, borðstofu og herbergi á neðri hæð.
Efri hæði telur hol, baðherbergi, 4 rúmgóð svefnherbergi og inn af einu herberginu er rúmgóð geymsla sem gæti nýst sem 6. svefnherbergið
Upphaflega var húsinu skipt í tvær íbúðir, eina á efri hæð og eina á neðri. Svo það er gert er ráð fyrir eldhúsi einnig á efri hæð og lagnir eru til staðar.
Einbýlishús á friðsælum stað á Eyrarbakka sem býður upp á mikla möguleika. Stór og gróin, afgit lóð með sólpalli. Bílaplan framan við húsið er malbikað. Einnig er stórt bílaplan á bakvið hús með mulning.
Nánari upplýsingar veita:
Snorri Sigurðarson, löggildur fasteigna og skipasali, s: 897-7027, snorri@heimaland.is
Elísa Dagmar Björgvinsdóttir, aðstoðarmaður fasteignasala í löggildingarnámi, s: 868-7938, elisa@heimaland.is
Gjöld sem kaupandi þarf að greiða vegna kaupa:
1. Stimpilgjald af kaupsamningi er 0,8% af heildarfasteignamati hjá einstaklingum. Sé um fyrstu kaup að ræða er stimpilgjald af kaupsamningi 0,4% af heildarfasteignamati.
2. Stimpilgjald af kaupsamningi - 1,6% af heildarfasteignamati hjá lögaðilum.
3. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, afsali, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. - kr. 3.800 af hverju skjali.
4. Lántökugjald lánastofnunar - samanber gjaldskrá viðkomandi lánastofnunar.
5. Umsýslugjald kaupanda er skv. verðskrá.
Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasalan Heimaland hvetur því viðskiptavini sína og væntanlega kaupendur af fasteignum að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir tilboðsgerð eða eftir atvikum fyrir kaupsamningsgerð. Ef þurfa þykir ættu væntanlegir kaupendur að leita til þar til bærra sérfræðinga um aðstoð við slíka skoðun.
www.heimaland.is, Austurvegur 6, 800 Selfoss, Fasteignasalan Heimaland ehf.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna













































