HÚSASJÁ

Túngata 23C

05-0101 · 820 Eyrarbakka

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
35 myndir

140 m²

Stærð

2

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1992

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



10 dagar á sölu

sell

60.300.000 kr

430.407 kr/m²

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu: Túngata 23C Eyrarbakka. Gott fjögurra herbergja endaraðhús 140,1 fm með bílskúr.

Húsið er steníklætt timburhús byggt 1992.  Íbúðin er 105,2 fm og bílskúrinn 34,9 fm, Alls 140,1

Töluvert mikið endurnýjað að innan.

Innra skipulag. Flísalögð forstofa með fataskáp. Hol. Eldhús og stofa í opnu rými. Snyrtileg innrétting, nýr ofn og helluborð. Ný svalahurð úr stofu út á verönd.

Þrjú rúmgóð svefnherbergi. Fataskápur í einu þeirra. Baðherbergi flísalagt. Innrétting, baðkar og sturta.

Flísalagt þvottahús, með nýlegri innréttingu.

Innangengt úr íbúð í bílskúr, Ný eldvarnarhurð.

Nýleg aksturshurð með opnara í bílskúr. Gönguhurðir í garð og að framanverðu. Geymsla og stórt geymsluloft með fellistiga. 3ja fasa rafmagn.

Snyrtilegur garður. Hellulögð innkeyrsla og hellulögð verönd í suðurgarði. Skjólveggir með hertu gleri. Garðhús/geymsla.

Snyrtilegt hús á góðum stað.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is

Bókið skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Túngata 23C

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu