HÚSASJÁ

Búðarstígur 14A

01-0101 · 820 Eyrarbakka

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

173 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

2

Baðherbergi

1887

Byggingarár

899 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Friðað

Bílskúr

Geymsla



163 dagar á sölu

sell

57.900.000 kr

333.910 kr/m²

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu einbýlishúsið Hof sem stendur við Búðarstíg 14A, á Einarshafnartorfunni á Eyrarbakka. Húsið er fjögurra herbergja, 155,2 fm og sérstæður bílskúr 18,2 fm, samtals 173,4. Upphaflega byggt árið 1887 - viðbygging 1944 og stendur á 898,7 fm lóð. Húsið á sér merkilega sögu og er einfalt timburhús af dansk-íslenskri eldri gerð. Af efri hæð hússins er virkilega fallegt sjávarútsýni.  Hlýlegt og sjarmerandi hús, mikið endurnýjað á undanförnum árum en á sama tíma reynt að halda í útlit gamla tímans.

Nánari lýsing:

Forstofa með fatahengi og inn af henni er baðherbergi með baðkari. Miðrými hússins telur endurnýjað eldhús, rúmgóða borðstofu og úr henni er gengið upp fjórar tröppur upp í stofuna. Úr stofunni er annars vegar útgengt á sólpall og hins vegar í hjónasvítu. Annað baðherbergi er inn af hjónasvítunni með sturtu, upphengdu wc og innréttingu.

Brattur stigi er upp í ris hússins og þar eru tvö svefnherbergi, annað þeirra mjög rúmgott.

Undir öllu húsinu er kjallari en bara að hluta til í góðri hæð og er hann nýttur sem vinnuaðstaða og geymsla.

Bílskúr heldur vatni og vindum en þarfnast endurbóta.

Á undanförnum árum hefur húsið talsvert verið endurnýjað bæði að innan sem utan. Má þar nefna rafmagn, lagnir, þak, klæðningu, glugga og m.fl.

Hafsteinn Þorvaldsson löggiltur fasteignasali s. 891-8891 eða hafsteinn@husfasteign.is

Hringið og bókið skoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, fyrstu kaupendur 0,4%, lögaðilar 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 2700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Fasteignasalan því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.Fletta í fasteignalista

Kort af Búðarstígur 14A

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34