HÚSASJÁ

Eyrarbraut 26

01-0101 · 825 Stokkseyri

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
44 myndir

184 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1972

Byggingarár

Svalir

Bílskúr

Þvottahús



634 dagar á sölu

sell

71.000.000 kr

385.870 kr/m²

Lögmannsstofa Ólafs Björnssonar kynnir í einkasölu:

Um er að ræða einbýlishús á Stokkseyri við Eyrarbraut 26. Eignin skiptist í íbúð sem er 138,7m2 og bílskúr sem er 45.3m2, samtals 184m2 samkvæmt skráningu þjóðskrár Íslands. Húsið er byggt árið 1972 og bílskúrinn árið 1975 úr holstein. Búið er að múra húsið að utan en það var gert að hluta árið 2024 og klárað sumarið 2025. Búið er að skipta um alla glugga í eigninni, en þá voru settir nýir gluggar í eldhúsið í byrjun árs 2024, nýir gluggar í hjónaherbergi, forstofuherbergi og lítill gluggi í stofu í lok árs 2024, og sumarið 2025 var klárað að skipta um aðra glugga. Þá er búið að setja dúk á gólf í búr sem er inn af eldhúsi. Þá var sett ný flasning á þak á bílskúr.

Skipt var um þak, timbur og járn, árið 2010 og árið 2014 var skipt um hluta af vatnslögnum og settir nýjir ofnar í húsið.

Búið að endurnýja margt og sinna góðu viðhaldi undanfarin ár.

Skipulag eignar: Forstofa, stofa, gangur, eldhús með búri, þvottahús, 4 svefnherbergi, baðherbergi og bílskúr.

Vinsamlegast bókið skoðun á eigninni hjá Kristófer - kristo@olafur.is

Nánari lýsing:

Forstofa:  Lítil forstofa þegar komið er inn í húsið með fataskáp. Flísar á gólfi. Svefnherbergi inn af forstofunni. Nýr gluggi í pöntun.

Gangur: Flísalagður gangur

Stofa: Rúmgóð stofa með aðgengi að hellulagðri verönd. Skipt var um svalahurð og stóra gluggan árið 2012. Nýr gluggi í pöntun í stofu.

Verönd: Hellulögð verönd í þokkalegu standi.

Eldhús: Viðarlituð innrétting er í eldhúsi með hvítri borðplötu og hvítar flísar á vegg milli skápa og borðs á innréttingu. Inn af eldhúsi er rúmgott búr sem verður dúklagt á næstu dögum. Flísar á gólfi.

Baðherbergi: Snyrtilegt baðherbergi með nýlegri innréttingu. Flísar á gólfi og veggjum. Baðkar og sturta.

Svefnherbergi: 4 svefnherbergi eru í húsinu en eitt herbergið var stækkað og tekin niður veggur á milli. Hægt að færa aftur í upprunalegt form en hurðargatið er nýtt sem bókahilla í dag.

Þvottahús:  Innrétting frá 2021, með hækkun fyrir þvottavél og þurrkara, og einnig var skipt um útihurð úr þvottahúsi.

Garður: Stór og fínn garður með hvítri timburgirðingu.

Bílskúr: Rúmgóður 45m2 bílskúr. Skipt um alla glugga árið 2023.

Skoðunarskylda kaupanda:

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Fasteignasala bendir væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Forsendur söluyfirlits:

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags.

Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Nánari upplýsingar veita Kristófer Ari Te Maiharoa, lögfræðingur og löggilltur fasteignasali kristo@olafur.is s: 416-2223, gsm: 695 6134 eða Ólafur Björnsson, lögmaður og löggiltur fasteignasali oli@olafur.is - s: 416 2220 - gsm: 894 3209

Kort af Eyrarbraut 26

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44