HÚSASJÁ

Hoftún

Lóð · 801 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
14 myndir

58 m²

Stærð

582000 m²

Lóð



185 dagar á sölu

sell

55.000.000 kr

95 kr/m²

Háborg fasteignasala kynnir jörðina/lögbýlið Hoftún í Árborg.

Jörðin er skráð 58.2 hektarar að stærð og skiptist í 14.1 ha stykki sem liggur að Holtsvegi. Stykkið er girt af og hefur verið notað sem beitiland og graðhestastykki sl. ár. Ofar í landinu og nær Selfossi er 44.1 ha stykki sem er afmarkað með fráveituskurðum.

Kalt vatn liggur meðfram vegi. Heimtaug við lóðarmörk.

Jörðin liggur í aðeins 6 mínútna fjarlægð frá Stokkseyri, 18 mínútna fjarlægð frá Selfossi og 45 mínútna fjarlægð frá Reykjavík.

Gott ræktunarland. Litlar takmarkanir eru á notkun landsins til ræktunar. Eigninni fylgir upprekstrarréttur á Flóa- og Skeiðaafrétt. Einnig fylgir veiðiréttur í áveituskurðum auk anda- og gæsaveiði.

Heimilt er að byggja upp til fastrar búsetu, landbúnaðarstarfsemi og minniháttar atvinnustarfsemi, jafnvel ótengd landbúnaði.

Jörðin er sérlega hentug sem frístundajörð s.s. að að skipuleggja sumarhúsabyggð því mjög fallegt landslag er víða í jörðinni og margir fallegir staðir, skjólgóðir og grónir.

Hér er um að ræða afar áhugaverða jörð á afskaplega fallegum stað.

Allar nánari upplýsingar veitir Felix Hjálmarsson aðstoðarmaður fasteignasala, í s. 865-8121 og Þórir Helgi Sigvaldason lögmaður og fasteignasali, thorir@haborg.is eða 823-7170.

Kort af Hoftún

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð