HÚSASJÁ

Tjörn

02-0101 · 851 Hellu

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
56 myndir

356 m²

Stærð

5

Herbergi

1

Baðherbergi

379158 m²

Lóð

Garður



284 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

495 kr/m²

Góð jörð sem er nefnd Tjörn og er við þorpið Þykkvabæ í Rangárþingi ytra, u.þ.b.. 75-80 mín. akstursleið frá Rvk. (116 km). Jörðin hefur síðustu ár verið nýtt til hrossaræktar. Jörðin er um 53,5 hektarar að stærð (verið að skrá endanlega stærð hjá yfirvöldum) og skv. núverandi upplýsingum hjá HMS eru þar af um 16 hektarar ræktaðir.

Mannvirki á jörðinni eru alls 356,2 fm skv. HMS, þar af er reisulegt einbýlishús sem er 170 fm að stærð, jarðhæð sem er 119,3 fm og efri hæð/ris sem er 50,7 fm, en gólfflöturinn er stærri því þó nokkrir fm eru undir súð. Endurbætur á íbúðarhúsinu hafa staðið yfir undanfarin ár og hefur þak, gluggar/gler, raflagnir, vatnslagnir og rotþró hafa verið endurnýjuð. Íbúðarhúsið þarfnast enn frekari endurbóta að utan en endurbætur að innan hafa ekki hafist nema að litlu leyti. Vélageymsla er skráð 231,3 fm að stærð sem hefur verið endurnýjuð að mestu (þak, klæðning, gluggar og hurðir endurnýjað og gólf steypt). Vélageymslan skiptist í tvö rými og eru tvær innkeyrsluhurðir. Umhverfis íbúðarhús og vélageymslu er fallegt tún. Undanfarin ár hafa hross verið ræktuð á hluta jarðarinnar sem hafa verið úti allt árið um kring en góð hrossarétt og hrossagerði er á jörðinni. Allar girðingar og hlið hafa verið endurnýjuð og er rafmagn í hluta girðinga. Jörðin býður upp á mikla möguleika í hrossarækt en ekki síður í ferðamennsku. Jörðinni fylgir hlutdeild í veiðisvæði Hólsár, vesturbakka einu gjöfulasta veiðisvæði landsins sem er leigt út.

Nánari upplýsingar veitir Eiríkur Svanur Sigfússon löggiltur fasteignasali í s. 862-3377 / eirikur@as.is og Svala Haraldsdóttir löggiltur fasteignasali í s. 820-9699 / svala@as.is

Ás fasteignasala er rótgróið fyrirtæki sem hefur veitt alla almenna þjónustu í fasteignaviðskiptum frá árinu 1988.

www.facebook.com/asfasteignasala

www.instagram.com/as_fasteignasala

www.as.is

Kort af Tjörn

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44Mynd 45Mynd 46Mynd 47Mynd 48Mynd 49Mynd 50Mynd 51Mynd 52Mynd 53Mynd 54Mynd 55Mynd 56