HÚSASJÁ

Nestún 10

01-0101 · 850 Hellu

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
29 myndir

156 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1975

Byggingarár

913 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



303 dagar á sölu

sell

64.900.000 kr

416.292 kr/m²

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:

Nestún 10 Hellu, samtals 155,9fm, 5herb. timburhús á steyptri plötu á rólegum stað.

Tvöfaldur bílskúr og stór garður.

Í forstofu er hengi fyrir yfirhafnir og pláss fyrir fataskáp.  Á hægri hönd er herbergi og lítil geymsla eða fataherbergi til vinstri sem upphaflega var ætlað fyrir salerni, - lagnir til staðar fyrir það.  Þá hol, svefnherbergi og baðherbergi til vinstri, stofan beint inn, eldhús á hægri hönd og þvottahús þar inn af.  Í eldhúsi er grámáluð innrétting, gler í hurðum efri skápa, spanhelluborð og bakarofn undir því, gott vinnupláss. Góðir búrskápar í horni og hægt að hafa þar matarborð og stóla. Hurð inn í þvottahúsið, skolvaskur í borði þar og geymsluhyllur upp um veggi, gólfið málað.  Eldhúsið er stúkað af frá stofunni með hlöðnum vegg sem setur skemmtilegan svip á húsið. Stofan björt og rúmgóð og gengt út á steyptan pall fyrir enda hússins með skjólveggjum á tvo vegu og kjallara með moldargólfi undir.  Svefnherbergin eru fjögur, hjónaherbergið stærst og það eina með fataskápum.  Baðherbergið er með flísalögðu gólfi, sturtuklefa, handlaug á skúffuskáp, handklæðaofni og klósetti.

Nýlegt vínilparket á gólfum herbergja, stofu, eldhúss og hols og nýlegar flísar á forstofu.

Bílskúrinn er vel stór eða 47,4fm og tvær flekahurðir á framhliðinni. Hann er einangraður og búið að klæða hann að hluta inni, stálbiti með talíu í loftinu, ágæt vinnuborð og geymslurekkar.  Gólfið steypt og viðgerðagrifja sem búið er að fylla upp í með möl.

Stór garður og möl í innkeyrslu.

Að utan er húsið klætt með liggjandi viðarklæðningu, gler og listar í öllum gluggum nema þvottahúss- var endurnýjað fyrir fjórum árum, nýleg útihurð og skipt var um þakjárn og þakkant 2020.

Leikskóli, skóli og sundlaug í þægilegu göngufæri.

ATH - Íbúðin er í leigu og því möguleiki að yfirtaka leigusamning.

--VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN--

Nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali

s. 896 9565,

loftur@husfasteign.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr.3.800.- af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Nestún 10

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu