HÚSASJÁ

Öldugerði 18

01-0101 · 860 Hvolsvelli

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
44 myndir

208 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1973

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



225 dagar á sölu

sell

79.900.000 kr

384.875 kr/m²

ÁRBORGIR SELFOSSI, s 482 4800 kynna í einkasölu.

Öldugerði 18 Hvolsvelli.

Gott eldra einbýlishús í rólegu og skjólgóðu hverfi á Hvolsvelli.

Húsið er steypt, klætt að utan með lituðu járni og er bárujárn á þaki.

Heildarstærð eignarinnar er 207,6m2 og er sambyggður bílskúr 44,8m2 þar af.

Að innan skiptist húsið í forstofu, sólskála, baðherbergi, þvottahús, 4 svefnherbergi, stofu og eldhús.

Nánari lýsing:

Forstofa er parketlögð og þar er fatahengi.

Hjónaherbergi er dúklagt og þar er stór fataskápur.

Barnaherbergin eru þrjú og eru öll parketlögð.  Tvö þeirra hafa verið stækkuð og eru bæði með tvo glugga og er því hægt að breyta þeim til baka og fjölga barnaherbergjum í 5 talsins.

Baðherbergi er flísalagt bæði gólf og veggir en þar er fín innrétting og sturta.

Þvottahúsið er með máluðu gólfi en þar er innrétting og hurð út á baklóð. Búr/geymsla er innaf þvottahúsi.

Stofan er rúmgóð, loft er upptekið og parket er á gólfi.

Eldhúsið er parketlagt en þar er góð eldri innrétting.

Sólskálinn er flísalagður að hluta, í enda hans er falleg kamína. Nýlegt járn er á þaki á sólskálanum.

Bílskúr er klæddur og málaður.

Hellulögð stétt er framan við húsið og á framhlið er einnig góður sólpallur.

Lóðin er öll gróin og skjólgóð og er búið að gróðursetja mikið í hana, á baklóð er upphitaður geymsluskúr úr timbri.

Staðsetning er mjög góð en húsið stendur innarlega í rólegum botnlanga.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.

arborgir@arborgir.is

Kort af Öldugerði 18

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32Mynd 33Mynd 34Mynd 35Mynd 36Mynd 37Mynd 38Mynd 39Mynd 40Mynd 41Mynd 42Mynd 43Mynd 44