HÚSASJÁ

Húsið

01-0101 · 861 Hvolsvelli

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
24 myndir

306 m²

Stærð

8

Herbergi

17

Svefnherbergi

10

Baðherbergi

1929

Byggingarár

Garður

Geymsla

Þvottahús



158 dagar á sölu

sell

190.000.000 kr

515.045 kr/m²

Litla Fasteignasalan s: 482-9900 kynnir

Húsið gistihús Fljótshlíð

- samanstendur af Húsinu sjálfu, gistihúsi aftar á lóðinni, tveimur sólstofum

og tveimur minni húsum á sér lóð

Þá fylgir reksturinn með, bókanir og bókunarvélar

Gistihúsið er í fullum rekstri 9 mánuði ársins og hefur megin áhersla

rekstursins verið þjónusta við hópa og er mikið um endurkomur og bókanir fram í tímann

Hægt er að hýsa allt að 46 manns

Húsin eru með öll leyfi  - Hér má sjá  Bókunarsíðu Hússins

-- Möguleiki er á að kaupa einungis reksturinn --

Húsið - er skráð 192,4 m2  auk sólstofu

Forstofa er rúmgóð með flísum á gólfi

Gangur innangengt í eldhús, búr og um stiga upp á aðra hæð hússins

Búr/geymsla er rúmgóð

Eldhús með hluta til hvítri nýlegri eldhúsinnréttingu og með innbyggðum ísskáp

En eldhúsið eru einnig með iðnaðareldhústæki,  stóran ofn, gas eldvél með 4 brennurum og stór steikarpanna

uppvöskunarvél og hrærivél

Þvottahús er inn af eldhúsi

Salerni er inn af eldhúsi

Stofa er stór með tvöfaldri hurð úr eldhúsi, parket á gólfi og með kamínu

Innangengt er úr stofu svefnherbergi og út í sólstofu

Mikil lofthæð er í stofu og í raun megninu af jarðhæðinni

Svefnherbergi inn af stofu

Sólstofa er rúmgóð með flísum á gólfi og er nýtt sem matsalur, útgengt er út í garð

Efri hæð

4 svefnherbergi með rúmum og kojum

Baðherbergi með sturtu og salerni

Baðherbergi 2 skiptist í sérsturturými og svo annað sturtu og salernisrými

inn af baðherginu er saunaklefi sem hefur ekki verið í notkun um tíma og er í dag nýttur sem geymsla

Lítil setustofa með stórum gluggum

Gistihús - er skráð 113,5 m2   auk sólstofu

Anddyri gengið inn á neðri hæð eða upp stiga

5 svefnherbergi eru á neðri hæð með rúmum og kojum

2 baðherbergi með sturtu og salerni

Gangur tengir öll rými á neðri hæð

Sólstofa er við enda gangs með parket á gólfi, útgengt út í garð

Efri hæð

3 svefnherbergi með rúmum

baðherbergi með sturtu og salerni

smá rými með vaski og borðbekk

Tvö úti baðherbergi

Búið er að koma fyrir í porti milli húsanna

2 baðherbergjum með sturtu og salerni

Minna gistihús -  skráð  31,5m2

2 svefnherbergi - bæði með gistingu fyrir tvo

Baðherbergi með sturtu og salerni

Anddyri innangengt í öll rými

Starfsmannahús  -  skráð  31,5m2

2 svefnherbergi - bæði með gistingu fyrir tvo

Baðherbergi með sturtu og salerni

Anddyri innangengt í öll rými

Verkfæraskúr er á lóðinni,

garðurinn er gróinn og skjólsæll

innkeyrsla og plan er hellulagt

Húsið var byggt árið 1929 og var nefnt Húsið þar sem það var aðal samkomustaður í sveitinni, þar var rekinn barnaskóli, einnig var þar sími og útvarp sem í upphafi þjónaði sveitinni, og einnig fór þar fram allt samkomuhald og skemmtanir í fjölda ára

Sjá staðsetningu

​​

Fljótshlíðin býður upp á einstaka fjallasýn með  Eyjafjallajökull, Þórsmörk og Þríhyrning í bakgarðinum og Vestmannaeyjar við sjóndeildarhringinn

Stutt að sækja ýmsar náttúruperlur Suðurlands

Frábær uppbygging hefur átt sér stað í Rangárþingi Eystri síðustu ár, þá er aukin þjónusta við fjölskyldur og eftirsóknarvert samfélag að tilheyra

Sjá Velkomin heim

Eign með mikla sögu og möguleika

Sjón er sögu ríkari

Nánari upplýsingar veitir

Sigþrúður J. Tómasdóttir

sími 892-0099   sissu@litlafasteignasalan.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi - 0.8% af heildarfasteignamati / 1.6% fyrir lögaðila

Fyrstu kaup - 0,4% af heildarfasteignamati

2. Þinglýsingagjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, veðleyfi o.fl.- kr. 2.700 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunar

4. Umsýsluþóknun til fasteignasölu, sbr.kauptilboð.

Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Litla Fasteignasalan benda væntanlegum kaupendum á að kynna sér vel ástand fasteigna við skoðun og fyrir tilboðsgerð og ef þurfa þykir að leita til sérfræðinga um nánari ástandsskoðun.

Kort af Húsið

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og greiningu