HÚSASJÁ

Vallholt 6

01-0101 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
58 myndir

155 m²

Stærð

4

Herbergi

4

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1989

Byggingarár

891 m²

Lóð

Garður

Svalir

Bílskúr

Þvottahús



279 dagar á sölu

sell

89.900.000 kr

581.125 kr/m²

Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali s.896 9565 og Hús fasteignasala kynna í einkasölu:

Mjög snyrtilegt og vel við haldið 5herb. 126,6fm einbýlishús ásamt 28,1fm bílskúr, samtals 154,7fm, innst í botnlangagötu í grónu hverfi á Selfossi.

Sérlega fallegur garður og frábær staðsetning.

Komið er inn í flísalagða forstofu með skáp fyrir yfirhafnir og forstofuherbergi þar á vinstri hönd með fataskáp og opið hurðagat inn í herbergið við hliðina.

Hurð úr forstofu inn í skála, hin herbergin og baðherbergið þar en sjónvarpshorn, stofa og eldhús á hægri hönd í vesturenda hússins.

Stofan björt og með uppteknu lofti og gengt út á stóran pall með skjólveggjum. Parket á gólfi hennar, skála, herbergjanna og sjónvarpshornsins.

Eldhúsið við hlið stofunnar, með dökkum innréttingum, borðkrók og vönduðum tækjum, bakarofninn nýr. Gott skápa- og borðpláss og flísar á gólfi.

Gengt úr eldhúsi fram í flísalagt þvottahús með stóru vinnuborði, dyrum út í garð og búri innaf.

Svefnherbergin eru fjögur, hjónaherbergið þeirra stærst og með stórum fataskáp.

Baðherbergið með flísum á gólfi og vel upp á veggi, baðkari og sturtu, klósetti og handlaug í innréttingu.

Bílskúrinn snyrtilegur með nýmáluðu gólfi, dálitlu geymslulofti, flekahurð að framan og göngudyrum bak við út í garð, - ekki innangengt úr húsinu.

Að utan er húsið klætt með standandi viðarklæðningu, gluggar og hurðir úr tré og bárujárn á þaki.

Skipt var um þak, rennur og þakkant, gler í gluggum og alla glugga í bílskúr árið 2018. Þá voru frárennslislagnir myndaðar eftir jarðskjálfta 2007 og voru í lagi.

Garðurinn er glæsilegur, með geymsluskúr og gróðurhúsi, margs konar blómum, runnum og trjám.

Mulningur í innkeyrslu og framan við húsið.

Virkilega eigulegt hús sem vert er að skoða.

-- VINSAMLEGAST BÓKIÐ EINKASKOÐUN --

Nánari upplýsingar veitir Loftur Erlingsson löggiltur fasteignasali

s. 896 9565  -   loftur@husfasteign.is

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna:

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati, (0,4% fyrstu kaup)  lögaðilar 1,6%

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr.3.800.- af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. kauptilboð

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill Hús Fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita jafnvel til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Kort af Vallholt 6

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð
Vallholt 6, 01-0101 | Húsasjá