HÚSASJÁ

Stekkholt 23

01-0101 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
4 myndir

182 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1968

Byggingarár

660 m²

Lóð

Bílskúr

Þvottahús



13 dagar á sölu

sell

91.900.000 kr

503.010 kr/m²

ÁRBORGIR SELFOSSI S 482 4800 kynna í einkasölu:

Mikið endurnýjað einbýlishús í grónu hverfi á Selfossi.

Húsið er steypt, múrað og málað að utan og bárujárn er á þaki.

Heildarstærð eignarinnar er 182,7 m2 og bílskúr 47,5 m2 þar af.

Að innan skiptist eignin í anddyri, þvottahús, baðherbergi, gestasnyrtingu, 2 svefnherbergi, sjónvarpshol (áður 2 herbergi), stofu og eldhús.

Nánari lýsing:

Anddyri er flísalagt og með fataskáp.

Forstofuherbergi er inn af anddyri, þar eru flísar á gólfi.

Stofa og borðstofa eru í opnu rými og flísar á gólfum, útgengt úr stofu á pall.

Eldhús var endurnýjað fyrir ca. 7 árum og með fínni innréttingu og borðkrók.

Hjónaherbergið er parketlagt og með fínum fataskáp.

Á herbergisgangi er búið er að opna á milli tveggja herbergja og útbúa sjónvarpshol sem auðvelt er að loka og búa til 1-2 herbergi.

Baðherbergi er með flísum á gólfi, sturtuklefa, upphengdu salerni og innréttingu.

Bílskúrinn er skráður 47,5 m2 og er innréttaður sem íbúð sem hægt er að leigja út.

Bílaplan er hellulagt/malbikað.

Skipt hefur verið um þak á húsinu, gluggar og útihurðar endurnýjaðar.

Í heildina er um að ræða gott og vel staðsett einbýlishús í grónu og skjólgóðu hverfi.

Nánari upplýsingar og bókið skoðun á skrifstofu Árborga.

arborgir@arborgir.is eða í síma 482-4800.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum af vegna kaupanna:

1. Stimpilgjald af kaupsamningi sem er: 0,8% af fasteignamati fyrir einstaklinga. 0,4% fyrir fyrstu kaupendur og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfum, veðleyfum o.fl. kr. 3.800,- hvert skjal.

3. Lántökugjald lánastofnunar. Skv. gjaldskrá viðkomandi lánveitanda.

4. Umsýslugjald kaupanda skv. gjaldskrá.

5. Þegar um nýbyggingu er að ræða greiðir kaupandi skipulagsgjald, 0,3% af brunabótamáti, þegar það er lagt á.

Kort af Stekkholt 23

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð