Skólavellir 10
01-0201 · 800 Selfossi



418 dagar á sölu
62.800.000 kr
405.423 kr/m²
LÖGMENN SUÐURLANDI S: 480 2900
Skólavellir 10 efri hæð, Selfossi. Í einkasölu.
Frábær staðsetning. Stutt er í alla þjónustu s.s skóla, sundlaug og verslanir.
Um er að ræða 121,3 fm. íbúð á efri hæð í tvíbýlishúsi ásamt 33,6 fm. bílskúr, samtals 154,9 fm. Að innan skiptist eignin í þrjú svefnherbergi, stofu, borðstofu, hol, eldhús og baðherbergi auk þess er geymsla og sameiginlegt þvottahús í kjallara. Lóðin er vel gróin og snýr til suðurs
Nánari lýsing:
Íbúðin er með sérinngangi og stiginn upp er nýlega teppalagður.
Þrjú svefnherbergi: Svefnherbergin eru öll með harðparketi á gólfi.
Eldhús: Harðparket er á gólfi í eldhúsi og þar er ný innrétting með innfelldri uppþvottavél og ísskáp.
Stofa: Harðparket á gólfi og útgengt á svalir sem snúa til suðvesturs.
Baðherbergi: Baðherbergið er flísalagt, þar er sturtuklefi, salerni og hvít innrétting með vaski.
Þvottahús og sérgeymsla er í kjallara.
Bílskúrinn er með álflekahurð.
Nánari upplýsingar veita
Sigurður Sigurðsson, löggiltur fasteignasali í síma 690-6166, sigurdur@log.is
Hallgrímur Óskarsson , löggiltur fasteignasali Skjalavinnsla í síma 845-9900, halli@log.is

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna
















