HÚSASJÁ

Seftjörn 14

01-0101 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
34 myndir

145 m²

Stærð

4

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1993

Byggingarár

Sérinngangur

Garður

Svalir

Geymsla

Þvottahús



11 dagar á sölu

sell

61.900.000 kr

622.736 kr/m²

Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Seftjörn 14. Fjögurra herbergja timbur parhús, 99,4 fm í grónu og vinsælu hverfi. Byggingarreitur fyrir bílskúr sem var áætlaður 45,6 fm en var aldrei byggður.

Frábær staðsetning í rólegri botngötu. Stór lóð, garðhús/geymsla og nýlega hellulögð verönd.

Nýtt járn á þaki og nýr þakkantur.

Innra skipulag. Flísalögð forstofa, Hol, stofa og borðstofa, parket orðið slitið. Eldhús flísalagt, snyrtileg innrétting sem er ca 20 ára gömul. Flísalagt þvottahús inn af eldhúsi, hurð út á bílaplan. Búr inn af þvottahúsi. Á herbergja gangi eru 3 svefnherbergi, upprunalegur dúkur á gólfum herbergja.  Fataskápar í tveimur herbergjum. Baðherbergi flísalagt og var endurnýjað fyrir ca 20 árum. Innrétting og baðkar með sturtuaðstöðu.

Nýlegt gler á suður og austur hlið hússins

Notaleg eign á vinsælum stað.

Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is

Bókið einkaskoðun.

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati og 1,6% fyrir lögaðila.

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar. Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu

Skoðunarskylda:  Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.

Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.

Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Kort af Seftjörn 14

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð