Miðengi 1
01-0101 · 800 Selfossi



243 dagar á sölu
101.900.000 kr
468.937 kr/m²
Hús fasteignasala og Snorri Sigurfinnsson löggiltur fasteignasali kynna í einkasölu. Miðengi 1, steypt, vandað og veglegt einbýlishús með stórum bílskúr. Alls 217,3 fm.
Húsið sem var byggt 1975 var töluvert endurnýjað árið 2020 og síðar. Frábær staðsetning í grónu hverfi og stutt t.d. í skóla og helstu þjónustu.
Íbúðarhluti hússins er 158,1 fm og bílskúr 59,2 fm. Alls 217,3 fm.
Í endurnýjun hússins er m.a. búið að skipta um allt gler og setja litað gler. Nýleg gólfefni eru á herbergjum, nýlegir fataskápar. Eldhús frá 2020 frá Fríform, þvottahús frá sama tíma. Baðherbergi endurnýjað að hluta. Rafmagn yfirfarið og skipt út rofum og tenglum. Nýlegar aksturshurðar í tvöföldum bílskúrnum. Allt málað að utan og innan árið 2020. Heitur og kaldur pottur frá 2020.
Innra skipulag. Opin forstofa, forstofusalerni, sjónvarpshol, stofa og borðastofa. Fallegt eldhús frá Fríform , innbyggður ísskápur og uppþvottavél. Eldhúsið er opið til borðstofu og í holið. Flísar á gólfi. Þvottahús með innréttingu og búr/geymsla inn af. Herbergjagangur, fjögur svefnherbergi, tvö minni og tvo stærri. Endurnýjaðir fataskápar í þremur þeirra. Sólstofa og hurð út á verönd. Sólstofan var byggð síðar. Nýlegt harðparket á herbergjum. Baðherbergi flísalagt í hólf og gólf. Baðkar og sturta, upphengt salerni og eldri innrétting.
Tvöfaldur bílskúr og endurnýjaðar aksturshurðar. Opin geymsla. Gönguhurð á sólpall.
Gróinn garður, Verönd og sólpallur með heitum og köldum potti. Hellulögð innkeyrsla.
Húsið er teiknað af Kjartani Sveinssyni arkitekt.
Nánari upplýsingar veitir Snorri Sigurfinnsson, löggiltur fasteignasali s. 8648090 eða snorri@husfasteign.is
Bókið skoðun.
Skoðunarskylda: Í lögum um fasteignakaup nr. 40/2002 er kveðið á um ríka skoðunarskyldu kaupenda á fasteignum. Vill HÚS fasteignasala því skora á væntanlega kaupendur að kynna sér vel ástand fasteigna fyrir kauptilboðsgerð og leita til þar til bærra sérfræðinga um nánari skoðun.
Söluyfirlit er samið af fasteignasala í samræmi við ákvæði laga nr. 70/2015. Þær upplýsingar sem fram koma í söluyfirliti þessu eru sóttar í opinberar skrár, til seljanda sjálfs og eftir atvikum til húsfélags. Seljandi veitir upplýsingar um eign í samræmi við upplýsingaskyldu laga um fasteignakaup nr. 40/2002. Fasteignasali sannreynir að þær upplýsingar séu réttar með sjónskoðun á eigninni.
Fasteignasali getur ekki fullyrt um ástand og eiginleika þeirra hluta fasteigna sem ekki eru aðgengilegir og sjást ekki berum augum, t.d. lagnir, dren, skólp og þak.

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá
- Verðmat fasteignar
- Sölusaga og verðþróun
- Samanburður sambærilegra eigna














































