HÚSASJÁ

Grashagi 13

01-0101 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
32 myndir

205 m²

Stærð

4

Herbergi

1974

Byggingarár

775 m²

Lóð

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús



149 dagar á sölu

sell

93.900.000 kr

458.272 kr/m²

Háborg fasteignasala og Kristín Rós Magnadóttir löggiltur fasteignasali kynna til sölu

Grashaga 13, Selfossi.

Vel skipulagt fimm herbergja einbýlishús á einni hæð með rúmgóðum bílskúr

og grónum, aflokuðum suður garði í grónu hverfi á Selfossi.

Eignin skiptist í íbúð 129,8 m², garðskála 25,1m² og bílskúr 50 m², samtals 204,9 m² samkvæmt Fasteignayfirliti HMS.

Nánari lýsing:

Anddyri með fataskáp.

Eldhús með dökkri innréttingu og borðkrók.

Stofa og borðstofa liggja saman og þaðan er gengið út í garðskála. Úr garðskála er innangengt í bílskúr.

Fjögur svefnherbergi eru á svefnherbergisgangi.

Baðherbergi, flísar á gólfi og veggjum, sturta, vaskaskápur og upphengt salerni.

Gestasalerni með vaskaskáp.

Þvottahús og geymsla, þaðan er útgengt út í garð..

Parket er á gólfum á eldhúsi, stofu/borðstofu, gangi og svefnherbergjum.

Garður er gróinn og þar er stór timburverönd með þremur garðhýsum og nýlegum

rafmagnspotti.

Þak á garðskála er ófrágengið. Þak á húsi er upprunalegt en var að

sögn seljanda málað fyrir tveimur árum.

Loft í bílskúr þarfnast viðhalds.

Á árunum 2018-2019 var skipt um eldhúsinnréttingu, hurðir og gólfefni alls staðar nema í

anddyri og þvottahúsi.

Nánari upplýsingar veitir Kristín Rós Magnadóttir löggiltur fasteignasali í síma 860-2078

eða á kristin@haborg.is

Kort af Grashagi 13

Dýpri greining á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður við sambærilegar eignir
Sjá verðmat og greiningu
Mynd 1Mynd 2Mynd 3Mynd 4Mynd 5Mynd 6Mynd 7Mynd 8Mynd 9Mynd 10Mynd 11Mynd 12Mynd 13Mynd 14Mynd 15Mynd 16Mynd 17Mynd 18Mynd 19Mynd 20Mynd 21Mynd 22Mynd 23Mynd 24Mynd 25Mynd 26Mynd 27Mynd 28Mynd 29Mynd 30Mynd 31Mynd 32