HÚSASJÁ

Erlurimi 2

01-0101 · 800 Selfossi

Sjá verðmat
Mynd 1
Mynd 2
Mynd 3
33 myndir

188 m²

Stærð

3

Herbergi

3

Svefnherbergi

1

Baðherbergi

1984

Byggingarár

740 m²

Lóð

Sérinngangur

Garður

Svalir

Bílskúr

Geymsla

Þvottahús

Heitur pottur



5 dagar á sölu

sell

95.900.000 kr

509.835 kr/m²

Hafsteinn Þorvaldsson fasteignasali og HÚS fasteignasala kynna í einkasölu: Virkilega snyrtilegt 142,7 fm einbýlishús með 45,4 fm sérstæðum bílskúr, samtals 188,1 fm byggt árið 1984 (bílskúr 1990) í hinu vinsæla Rimahverfi á Selfossi. Að utan er húsið klætt með standandi viðarklæðningu og á þaki er járn. Garður er snyrtilegur, steypt bílaplan og í bakgarði er stór timbursólpallur með skjólgirðingu og heitum potti. Rúmgóður, flísalagður bílskúr og í honum er sánaklefi.  Á lóð er kaldur geymsluskúr ca 8 fm.  Vandaður, sambyggður sólskáli með hita í gólfi.

Nánari lýsing: Þrjú góð svefnherbergi eru í húsinu. Flísalögð forstofa með stórum fataskáp. Miðrými hússins telur borðstofu- stofu og snyrtilegt eldhús. Úr stofu er opið inn í vandaðan flísalagðan sólskála og þar er arinn.  Úr sólskála er hurð út á stóran sólpall með heitum potti. Í eldhúsi er upprunaleg innrétting með góðu skápaplássi og flísalagt er á milli borðplötu og efriskápa. Góður borðkrókur í eldhúsi.  Flísalagt  baðherbergi með sturtu, innréttingu/skáp og baðkari. Á gólfum eru annars vegar parket og hinsvegar flísar.  Þvottahús með góðri innréttingu sem gerir ráð fyrir þvottavél/þurrkara í vinnuhæð.  Geymsluloft uppúr þvottahúsi.  Inn af eldhúsi er geymsla með hillum og skápum sem gefur einnig möguleika á fjórða svefnherberginu.

Rúmgóður, flísalagður og bjartur bílskúr.

Gott fjölskylduhús og vel skipulagt. Afar eftirsóknarverð staðsetning í barnvænu umhverfi þar sem mjög stutt er í leik-, grunn- og framhaldsskóla og örstutt á íþróttasvæði bæjarins. Verulega spennandi kostur fyrir fjölskyldufólk!

Nánari upplýsingar veita Hafsteinn Þorvaldsson viðskiptafræðingur/löggiltur fasteigna,- og skipasali s. 891-8891, hafsteinn@husfasteign.is

"Okkar fagmennska eru þínir hagsmunir"

Gjöld sem kaupandi þarf að standa straum að vegna kaupanna.

1. Stimpilgjöld af kaupsamningi - 0,8 % af heildarfasteignamati.   (0,4% fyrstu kaup, 1,6% lögaðilar)

2. Þinglýsingargjald af kaupsamningi, veðskuldabréfi, mögulegu veðleyfi o.fl. kr. 3800 af hverju skjali.

3. Lántökugjald lánastofnunnar, almennt 0.5 - 1.5 % af höfuðstól skuldabréfs, Nánari upplýsingar t.d. á heimasíðum lánastofnanna.

4. Umsýslugjald til fasteignasölu sbr. Kauptilboð

Kort af Erlurimi 2

Fáðu nýja innsýn á Húsasjá

  • Verðmat fasteignar
  • Sölusaga og verðþróun
  • Samanburður sambærilegra eigna
Sjá verðmat og samanburð